Lögfræðistofa í Kanada hefur nú sett af stað hópmálsókn á hendur hinu íslenska flugfélagi Wow Air vegna vangoldinna bótagreiðslna flugfélagsins. Þessi málsókn beint í kjölfar annarrar slíkrar sunnan landamæranna í Bandaríkjunum.

Sem fyrr er Wow Air hin allra besta landkynning og fátt betur til þess fallið en neita að borga viðskiptavinum tilskyldar bætur eftir vesen í ferðum með flugfélaginu.

Hér ekki um örfáa einstaklinga að ræða heldur tugi að minnsta kosti og mögulega fleiri en það. Hópmálsókn borgar sig engan veginn nema fjöldi kvartenda nái nægilegum fjölda til að lögfræðistofa njóti virkilega góðs af ef dómari fellst á kröfurnar.

Það engar fréttir fyrir lesendur Fararheill að illa gangi að fá bætur þegar eitthvað fer miður hjá Wow Air. Við höfum greint frá slíkum dæmum nánast frá jómfrúarflugi félagsins. Og góðu heilli eru nógu margir í Kanada og Bandaríkjunum sem neita að láta svindla á sér sýknt og heilagt til að herra Mogensen þarf nú, auk þess að bjarga flugfélagi sínu, að hafa áhyggjur af umtalsverðum kostnaði fyrir dómstólum á tveimur vígstöðvum í einu.