ÆÆÆ. Áætlunarvél Icelandair frá Denver í Kolóradó til Keflavíkur drjúgt á eftir áætlun þennan daginn. Svo drjúgt að hver og einn þeirra farþega sem eftir leita ættu að eiga inni 75 þúsund krónur hjá flugfélaginu.

Hvern munar ekki um slíkan seðil? Það nánast borgar flugið fram og aftur milli Denver og Keflavíkur og heim aftur.

Flug FI431 sem lenda átti í Keflavík samkvæmt áætlun klukkan 06.15 í morgun snerti ekki íslenska jörð fyrr en þremur og hálfri klukkustund síðar klukkan 09.47 eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.

Það þýðir ávísun upp á 75 þúsund krónur fyrir þá farþega sem leita réttar síns samkvæmt Evrópureglum og munar sannarlega um minna.  Lengd ferðarinnar og lengd tafar þýðir að um hámarksbætur er að ræða eða um 600 evrur. Miðað við miðgengi dagsins telur það 75 þúsund íslenskar krónur en fólk þarf eðli máls samkvæmt að gera kröfu um bæturnar gegnum Samgöngustofu og væntanlega að bíða rólegt í nokkra mánuði.

Hvers vegna erum við svona viss um þetta. Jú, við gúggluðum flug og veður frá Denver síðasta sólarhringinn og hafi verið slæmt veður eða almennt miklar tafir á flugi þaðan er ekki staf um það að finna í fjölmiðlum í Kolóradó. Því til viðbótar var ekki að finna neinar aðvaranir á vef Icelandair um sérstakar tafir til eða frá.

Sem bendir 99 prósent til þess að eitthvað hafi á bjátað hjá flugfélaginu sjálfu og það á auðvitað ekki að bitna á saklausum farþegum nema bætur komi fyrir 🙂