Gaman að þessu. Eigandinn heldur sjálfum sér afmælisveislu upp á hálfa milljón króna en bjáti eitthvað á hjá farþegum Wow Air geta þeir nokkuð étið það sem úti frýs.

Kieran Watkins var á leið í flug með Wow Air þegar annað lungað féll saman. Wow Air sýndi enga miskunn. Skjáskot

Athyglisverð færsla á Twitter þetta kvöldið. Þar lýsir ungur maður reynslu sinni af þjónustu Wow Air Skúla Mogensen eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.

Þýðing líklega óþörf en í grunninn varð viðkomandi fyrir því að lunga féll saman með tilheyrandi sjúkrahúsvist áður en ferð hófst. Þrátt fyrir óskir um aðstoð vegna málsins sýndi Wow Air manninum engan lit, hafnaði endurgreiðslu og heimtaði enn feitari seðil fyrir endurbókun á ferð mannsins.

Ekki kemur fram hvort viðkomandi var með eða keypti ferðatryggingu sem auðvitað bætir ferðatjón í slíkum tilvikum. En stundum er líka barasta í lagi að sýna lit og samhug jafnvel þó svo hafi ekki verið. Maðurinn er varla að feika alvarleg veikindi miðað við myndina og það kostar Wow Air enga stóra fjármuni að einfaldlega endurbóka fyrir viðkomandi þegar hann er nægilega heilsuhraustur til að ferðast.

En auðvitað á skítaframkoma Wow Air í þessu tilfelli ekki að koma á óvart.