Þetta er einfaldlega of gott. Farþegar Wow Air á leið til Frankfurt í desember síðastliðnum þurftu að gera sér að góðu að vera flogið til Berlínar í staðinn og taka þaðan rútu á sinn eiginlega áfangastað. Það ekki nema átta klukkustunda rúntur…

Ómögulegt að þreytast á að tala um Wow Air Skúla Mogensen. Fyrirtækið virðist alls ekki fært um nokkurn einasta hlut. Eða hvernig finndist þér að vera hent inn í vél sem er að fara allt annað en þú ætlaðir og svo skaltu bara taka átta stunda rútuferð á áfangastaðinn? Hætt við að ánægjan væri langt undan við þær aðstæður fyrir utan auðvitað að missa tæpan sólarhring af fríinu. Ekki síst þar sem flugfélagið tímdi ekki að blæða í lestarmiða á milli heldur lét rútu duga.

Þetta svona þokkalega á pari við að ætla að fljúga til Barselóna á Spáni en svo lendir rellan í Malaga og flugfélagið gefur þér rútumiða til Barselóna.

Alvarlega óboðlegt hjá Mogensen.