Eitthvað yrði um kvartanahringingar besservissa í fjölmiðla á borð við útvarp Sögu ef keppt væri í nektarhlaupi á Þjóðhátíðinni í Eyjum svo dæmi sé tekið. Austur í Danmörku hins vegar er nektarhlaup sprell og fjör a Hróarskeldur og Íslendingur sem vann sigur þetta árið. Kærastan  segist stolt af kappanum.

Íslendingur sigraði árlegt Nektarhlaupið á Hróarskelduhátíðinni. Mynd Henrik Ismarker

Íslendingur sigraði árlegt Nektarhlaupið á Hróarskelduhátíðinni. Mynd Henrik Ismarker

Um þetta er fjallað í öllum helstu vefmiðlum Danmerkur og ólíkt íslenskum miðlum sem fela kynfæri Péturs Geirs Grétarssonar, sem keppnina vann, hafa þeir dönsku ekkert fyrir því.

En er það ekki akkurat þetta sem er ástæða þess að Hróarskelduhátíðin er svo vinsæl meðal Íslendinga og raun ber vitni. Þangað fara árlega einhver þúsund Íslendinga þó nákvæmar tölur séu mjög á reiki.

Það er nefninlega ekki allt bannað þar eins og hér sem þýðir að frjálsræði og skemmtun um leið er meira alvöru. Enda eru Hróarskelduhátíðin og reyndar fjölmargar hátíðir í Evrópu frábrugðnar íslenskum útihátíðum að því leytinu að þar er meginþorri fólks ekki að hella sig fullt allan tímann.

Fram kemur í ritgerð Hildar Elísabetar Þorgrímsdóttur um áhuga Íslendinga á Hróarskelduhátíðinni að landinn er ekki bara að leggja land undir fót til að berja augum frægar hljómsveitir. Ekki síður mikilvæg er stemmningin á svæðinu, stemmning sem ekki finnst hérlendis.