Ritstjórn Fararheill hefur verið tekin í rúminu af Icelandair. Svo virðist sem flugfélagið hafi tekið upp á því í byrjun apríl, og farið undarlega hljótt með, að auka töluvert farangursheimildir farþega á öllum farrýmum.

Farþegar Icelandair geta nú tekið með sér meiri farangur en áður var hægt án þess að greiða fúlgur fjár
Ekki er ýkja langt síðan Icelandair, sem eitt íslensku flugfélaganna þó hvorki Wow Air né Iceland Express séu flugfélög í eiginlegri merkingu samsamar sig ekki við lágfargjaldaflugfélög, bætti svokölluðu 500 króna bókunargjaldi á alla sína farþega.
Ástæða þess óljós nema að starfsmaðurinn sem starfar við bókarnir sé með milljónir í laun á mánuði. Flugfélagið gerði lítið í að auglýsa það aukagjald þó auglýsingar þess sé víða að finna.
Heldur ekki kynnti Icelandair þann 1. apríl að eftirleiðis geta farþegar félagsins tekið með sér meiri farangur en verið hefur. Þannig jukust farangursheimildir á almennu farrými til og frá Evrópu úr 20 kílóum á mann í 23 kíló á mann. Á Liðlegu almenningsfarrými, economy comfort, og Saga class farrými bætti flugfélagið heldur betur úr. Fyrir apríl máttu þeir fyrrnefndu taka með sér farangur að 30 kílóum alls en nú geta þeir pakkað 46 kílóum án aukagjalds. Á saga class geta farþegar nú flutt með sér 64 kíló í tveimur töskum en máttu fyrir apríl aðeins taka með 30 kíló.
Ekki nóg með þetta heldur geta allir farþegar nú tekið með sér meira magn handfarangurs. Á almennu farrými var fyrir apríl miðað við sex kíló af handfarangri á mann en er nú 10 kíló svo dæmi sé tekið.
Sökum aukinnar samkeppni í vor og sumar á ýmsum flugleiðum Icelandair er illa hægt að gera sér grein fyrir hvort auknar farangursheimildir hafa aukið verð flugmiðans. Eða kannski er það vegna aukinnar samkeppni sem Icelandair eykur og bætir þjónustu sína með þessum hætti….








