Tíðindi

Tælendingar óttast uppgang Myanmar

  08/07/2012No Comments

Tælensk ferðamálayfirvöld óttast mikinn uppgang í ferðaþjónstu í nágrannaríkinu Myanmar en eftir að þarlend stjórnvöld ákváðu að opna dyr sínar upp á gátt hefur ferðamönnum fjölgað í landinu um 50 prósent.

Ngapali strönd í Myanmar. Þar hafa um margra ára skeið fáir verið nema fiskimenn með báta sína. Hætt er við að það breytist mjög fljótlega úr þessu enda strendurnar jafnvel betri en strendurnar í Tælandi

Það hefur vakið titring meðal ferðaþjónustuaðila í Tælandi sem hingað til hafa ekki þurft að óttast mikla samkeppni frá nágrannalöndum sínum og sennilega fyrir vikið hefur verðlag á helstu ferðamannastöðum þar í landi hækkað jafnt og þétt um árabil.

En Myanmar býður ekki síðri vöru en Tæland og í mörgum tilfellum töluvert betri ef þeim lánast að koma í veg fyrir fjöldatúrisma á helstu ströndum sínum og dásemdarstöðum. Myanmar mun njóta þess að ferðamenn hafa verið tiltölulega fáir í landinu allar götur frá árinu 1962 þegar herforingjastjórnin tók völdin í landinu.

En fyrir vikið þarf líka töluverða uppbyggingu áður en Myanmar fer að heilla ferðafólk jafn mikið og Tæland og mun sú þróun taka tíu til fimmtán ár hið minnsta.