Tíðindi

Aukinn réttur vegna veikinda í fríinu

  09/07/2012No Comments

Hafir þú einhvern tíma orðið fyrir því að veikjast í fríinu er það yfirleitt ekki heiglum hent að sækja bætur og hvað þá að freista þess að fá ónýta frídagana bætta. Nú hefur æðsti dómstóll Evrópusambandsins loks kveðið upp úr um að veikindi í fríi heyri undir veikindadaga og gefi viðkomandi rétt á að taka frídagana aftur.

Æðsti dómstóll ESB hefur staðfest að veikindi í fríi falla undir veikindadaga og frídagarnir sem tapast má taka á nýjan leik

Um ákveðinn tímamótadóm er að ræða en þrátt fyrir töluverðar tilraunir ritstjórnar Fararheill hefur ekki tekist að fá úr því skorið hvort dómurinn nái líka til Íslands og Íslendinga.

Dómur Dómstóls Evrópusambandsins, Court Justice of the European Union, er bindandi fyrir öll aðildarlöndin en málið var sent dómstólnum frá Hæstarétti Spánar þar sem tekist var á um hvort veikindi í fríi féllu undir veikindadaga eða frídaga.

Telur dómurinn engan vafa leika á að veikindi í launuðu fríi heyri undir veikindadaga alveg eins og hefðbundnir veikindadagar enda sé stigsmunur á veikindaleyfi og fríi. Fari því fríið fyrir lítið vegna veikinda, eins og algengt er hjá mörgum, liggur nú fyrir að viðkomandi getur tekið umrædda frídaga á nýjan leik.

Þekki lesendur í þaula hvort dómur þessi nær til Íslands væri gott að fá það staðfest.

Dómurinn hér.