Pistlar

Kína utan alfaraleiða

  09/07/2012No Comments

Kína er fyrir marga afskaplega heillandi land til ferðalaga og þá ekki síður óþekktari staðir en þeir vinsælli. Upplýsingar um ferðalög utan alfaraleiða í landinu eru almennt af töluvert skornum skammti en standi vilji til að fræðast meira er þjóðráð að lesa bók Nóbelsverðlaunahafans Gao Xingjian, Soul Mountain, þar sem hann rekur ferðir sínar um ýmsa staði í landinu.

Lífið víða í Kína er víðsfjarri glys og glaumi í stórborgum landsins

Gao er kínverskur eins og nafnið gefur til kynna og skrifaði Sálarfjallið árið 1989. Hún kom þó ekki út á Vesturlöndum fyrr en um aldamótin og þykir upp og niður.

Hún er þó æði fróðleg þeim er hug hafa að þvælast um Kína því þótt ýmislegt hafi tekið stakkaskiptum í Kína hin síðustu ár er stór hluti landsins enn töluvert aftarlega á merinni og það er um þau svæði sem Gao þvælist og skrifar um í bók sinni. Sérstaklega gefur hún ágæta innsýn inn í hugarheim íbúa fátækari svæða landsins.