Pistlar

Þjónustuskortur hjá Wow Air og Iceland Express

  12/07/2012janúar 22nd, 2014No Comments

Heita má makalaust að flugfélög sem gefa sú út fyrir að vera ódýr, og jafnframt besti, valkostur í flugi fyrir landann skuli bæði fara fram á að hver einasti aðili sem áhuga hefur á að eiga við þau viðskipti þurfi að fletta síðum á vef þeirra lon og don til að finna lægstu verð sem þau auglýsa.

Iceland Express auglýsir á heimasíðu sinni nú, 12 júlí, ódýrar ferðir til Edinborgar, Kölnar og London Gatwick. Sú fyrstnefnda fæst ódýrast á 20.700 krónur aðra leiðina samkvæmt auglýsingunni. Leit ritstjórnar Fararheill leiddi í ljós að klukkan 21 þann 12. júlí, fundust á bókunarvef flugfélagsins þrjár slíkar ferðir frá Keflavík aðra leiðina til Edinborgar. Þann 6. ágúst, 13. ágúst og 20. ágúst sem jafnframt er síðasti dagur sem flogið er til borgarinnar skosku.

Sömuleiðis fundust þrjár dagsetningar á auglýstu 15.900 króna verði til Kölnar í Þýskalandi. Þær ferðir eru 17, 20 og 28 ágúst og kosta reyndar 15.800 krónur á bókunarvefnum.

14.900 króna farið til Gatwick flugvallar í London fannst fimm sinnum. 22. og 25. júlí og 3, 5 og 10. ágúst.

Hjá Wow Air er það sama upp á teningnum. Leita þarf sérstaklega að þeim dögum sem sértilboð eru í boði. Ritstjórn spyr sig hvort matvöruverslun kæmist upp með að setja tilboðsvörur mjög afsíðis eins og virðist vera raunin hjá Wow Air og Iceland Express.

Ólíkt þeim er staðan önnur hjá Icelandair. Þar sjást í einum glugga tvær til þrjár vikur fram í tímann og ekki þarf að vera sérstakur vefflettimeistari eða búinn með sex stig þolinmæði í búddaklaustri til að finna hagstæðustu fjargjöldin.

Enn betri er þjónusta hins virta lágfargjaldaflugfélags Norwegian en þar er sérstaklega hægt að leita að ódýrustu fargjöldunum með einum hnappi. Lavpriskalendar heitir sá og sýnir svart á hvítu hvenær allra ódýrast er komist hingað og þangað um heiminn. Er þó Norwegian lágfargjaldaflugfélag líka.

Það kann að hljóma kjánalega en Fararheill veit um einstaklinga hérlendis sem þurfa að fá aðstoð við að bóka flugfargjöld vegna mikillar gigtar í fingrum. Þó ekki væri nema þeirra vegna er lágmark að bjóða viðskiptavinum upp á að bóka billegasta fargjaldið án þess að þurfa að eyða til þess lunga úr degi eða kvöldi….. eða hvað?