Hver sá sem sagði að sumarið væri tíminn hafði rangt fyrir sér. Haustið er tíminn ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar Fararheill á því hvenær fólk legði helst land undir fót.
58 prósent þátttakenda sögðu haustin besta tímann til ferðalaga erlendis og má vel færa rök fyrir því enda lengir það stutt sumarið á farsæla Fróni. 28 prósent til viðbótar kjósa helst að ferðast á veturnar fái það um það ráðið.
Vor og sumar vill fólk gjarnan vera heimavið ef mark má taka á könnuninni. 9 prósent vilja helst ferðast á vorin og einungis fimm prósent svarenda vilja helst af öllu ferðast yfir sumartímann.
Haust og vetur eru því yfirgnæfandi vinsælli en vor og sumar til útferða samkvæmt þeim 380 sem þátt tóku að þessu sinni.
Taka skal niðurstöðunni með fyrirvara enda um óformlega netkönnun að ræða. Hún gefur þó ákveðnar vísbendingar.







