Fullyrt er að aldrei í sögunni hafi öryggi flugfarþega á Keflavíkurflugvelli verið jafn lítið og það sé nú. Er þar meðal annars vísað til þess að slökkvilið Sandgerðisbæjar fari nú með brunavarnir á flugvellinum. Margir starfsmenn þeirra séu ekki menntaðir slökkviliðsmenn.

Stór orð látin falla um öryggisviðbúnað á Keflavíkurflugvelli. Fullyrt að aldrei hafi öryggi farþega verið minna en nú
Þetta fullyrðir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri INN, og segist hafa fyrir þessu áreiðanlegar heimildir manna sem starfað hafi á Keflavíkurflugvelli um áraraðir.
Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, gerði í vor samning við Sandgerðisbæ um brunavarnir á flugvellinum og segja heimildamenn Ingva það hafa verið slæma hugmynd. Þar standi til að þjálfa óvana menn til verksins sem sé varla ýkja traustvekjandi á eina alvöru alþjóðaflugvelli landsins.
Hvað sem hæft er í þessu skal ósagt látið þó ritstjórn Fararheill hafi líka heyrt óánægjuraddir með þessa skipun brunavarna á Keflavíkurflugvelli.
Hins vegar er eitthvað bogið við að slökkvilið tæplega tvö þúsund manna bæjarfélags skuli bera ábyrgð á eldvörnum og viðbúnaði á flugvelli þar sem 600 þúsund manns fara í gegn á þessu ári.






