Það leikur enginn vafi á hvar ljúffengustu máltíðirnar í Bretlandi er að finna ef marka má sigurvegara National Restaurants Awards en sú keppni þykir orðið með þeim merkari í landinu. Nýlegur indverskur staður þótti þó mest bera af og staðir í London einoka efstu sætin.
Þar er um að ræða hinn indverska Gymkhana sem staðsettur er í Albemarle stræti í Mayfair hverfinu sirka mitt á milli Hyde Park og Charing Cross brautarstöðvarinnar.
Sá þykir ná frábærlega sömu áhrifum bæði í mat og umhverfi og indverskir staðir í Indlandi þegar Bretar réðu þar ríkjum. Maturinn vissulega fyrirtak og það getur Fararheill vottað en það þarf að punga vel út fyrir. Máltíð fyrir tvo með víni hér fer auðveldlega í 20 þúsund krónur.
Aðrir staðir sem ofarlega komast eru gamalkunnir þeim er elska góðan mat. Í öðru sætinu er hinn sívinsæli Clove Club í Shoreditch sem margir Íslendingar kannast við. Þriðja sætið vermir svo Ledbury í Notting Hill en sá hefur náð ofarlega ár eftir ár og meira að segja Frakkarnir hjá Michelin hafa gefið tvær stjörnur.
Topp hundrað listann þetta árið í heild sinni má finna hér. Svo finnur þú allra lægstu verð á hótelum í London hér að neðan og eyðir minna í hótel og meira í mat.








