Áttum okkur ekki alveg á þessu viðskiptamódeli. Seljum eins og við eigum lífið að leysa en ef fólk lendir í vandræðum eftir að hafa lagt inn á reikninginn okkar er það bara töff lökk.
Dálítið athyglisvert að hringja í íslenskt símanúmer flugfélagsins Wow Air. Þá fæst strax símsvari þar sem hringjendum er tilkynnt að „bið eftir þjónustu geti verið lengri en fólk kæri sig um.“
Forvitnileg tilkynning. Sjálf enduðum við símtal til Wow Air eftir sextán mínútna bið og það í íslenskt númer flugfélagsins. Miðað við margar kvartanir á samfélagsmiðlum undanfarin misseri eru margir sem bíða í klukkustund og jafnvel tvær án þess að ná nokkurn tímann í manneskju til aðstoðar þegar reynt er að hringja í erlend upplýsinganúmer Wow Air.
Það sleppur kannski ef aðeins vantar upplýsingar um hvort flugfélagið selji vegan-mat um borð. En þegar viðskiptavinir eru strand í Tel Aviv eða hafa ekki fengið farangur sinn eftir margra daga bið er auðvitað æði mikilvægt að ná tali af raunverulegri manneskju sem getur hjálpað og veitt upplýsingar á augabragði. Jafnvel lífsspursmál í stöku tilfellum.
Ferðalög eru jú nógu flókin og erfið fyrir svo ekki bætist ofan á algjört sinnuleysi fyrirtækja gagnvart farþegum sínum.














Alls óhætt að hugsa tvisvar um að fljúga með Wow Air. Ef eitthvað bjátar á ertu í vondum málum og það versnar ár frá ári virðist vera. Sem hlýtur að merkja að háttvirtum Mogensen er slétt sama.







