Þegar þetta er skrifað er áberandi viðvörun á vef Icelandair þess efnis að flug til og frá Kaupmannahöfn tefjist töluvert á morgun 18. febrúar. Ekki finnst einn stafur um málið á komu- og brottfararvef Keflavíkurflugvallar.

Það stór galli á upplýsingavef Keflavíkurflugvallar að það eru flugfélögin sjálf sem sjá alfarið um að birta upplýsingar um komu- eða brottfarartíma véla.

Það auðvitað brilljant hugmynd ef því væri að treysta að flugfélögin kæmu þar hreint fram en ýmislegt bendir til að það sé ekki alltaf raunin.

Samkvæmt upplýsingum á vef Icelandair fer vél FI212 í loftið til Köben frá Keflavík klukkan 16.10 á morgun. Ekki staf um það að finna á upplýsingavef Keflavíkurflugvallar. Skjáskot

Síðasta dæmið um slíkt varðar viðvörun Icelandair á sínum eigin vef en þá viðvörun má sjá hér að ofan. Þar segir að tafir verði á flugi til Köben og frá Köben á morgun.

Ók, tafir geta orðið hjá bestu flugfélögum og gott mál að vara við í tíma. En gallinn sá að Icelandair hefur ekkert haft fyrir að láta Keflavík vita af snarbreyttri áætlun til og frá Köben. Hvergi finnst stafur á brottfarartöflu Keflavíkurflugvallar um flug FI212 þann 18. febrúar.

Sem er nú eiginlega fokkin lágmark ekki satt. Flugfarþegar eru jú ekki allir að þvælast á heimasíðu flugfélagsins heldur vilja fá upplýsingar beint af kúnni á flugvellinum. En samkvæmt upplýsingum í Keflavík er ekkert flug FI212 á morgun. Farþegar geta bara étið það sem úti frýs virðist vera.

Arfaléleg þjónusta.