Merkilegt. Meirihlutaeigendur hlutafjár Icelandair eru íslenskir lífeyrissjóðir. Við með öðrum orðum. Engir forsvarsmenn lífeyrissjóðanna hafa kallað eftir haus nýs forstjóra þó gengi bréfa fyrirtækisins eftir að hann tók völdin minni frekar á dánarbú en fyrirtæki í bullandi vexti.

Björgólfur Jóhannsson þykir móðins. En hvers vegna hafa bréf í Icelandair ekki bifast agnarögn upp á við eftir að hann tók alfarið við taumum? Skjáskot
Hér til hliðar gefur að líta gengi hlutabréfa Icelandair síðustu mánuðina. Engum dylst að vorið 2016 tóku hlutabréf Icelandair feitari dýfu en hægt er að fá hjá Dairy Queen.
Gott og blessað. Hlutabréf taka dýfur og/eða skjótast upp eftir því hve fjárfestar hafa mikla trú á fyrirtækinu.
Það athyglisverðasta við töfluna hér til hliðar hlýtur að vera að Björgólfur Jóhannsson, hefur ekki bifað bréfum Icelandair upp einn þumlung eftir að hann lét sparka Birki Hólm Guðnasyni fyrrum forstjóra í nóvember 2017.
Björgólfur var áður forstjóri Icelandair samsteypunnar og þótti móðins gaur hjá viðskiptafræðingum. Hvaðan gaurinn hefur fengið þetta kúdos hjá fjárfestum er vandséð fyrir leikmenn á borð við okkur hér hjá Fararheill. Ekki aðeins hafa bréf Icelandair fallið niður á par við það sem bréfin kostuðu árið 2013 þegar EKKI var byrjað neitt ferðamannaæði á klakanum heldur og hafa bréfin ekki hækkað um einn punkt síðan Birkir Hólm fékk sparkið né heldur er það plús að í fyrsta sinn í íslenskri flugsögu flutti Wow Air fleiri farþega en Icelandair í byrjun þessa árs.
Ókei, hvað kemur okkur þetta við kann einhver að spyrja. Jú, velflestir lífeyrissjóðir landsmanna, þú veist peningarnir sem þú færð þegar enginn hefur not fyrir þig lengur, eiga stóran hlut í Icelandair. Ef Icelandair gengur illa færð þú minni pening í ellilífeyri.
Þess vegna á Björgólfur Jóhannsson að fá sparkið og það ekki síðar en núna. Handónýtur forstjóri í allri merkingu þess orðs. Út með manninn strax!







