Um síðustu áramót fórum við hér fram á að fá uppgefið hjá Ísavía hversu oft íslensku flugfélögin hefðu aflýst flugferðum á árinu 2017. Eðli máls samkvæmt hjá ríkisfyrirtækinu voru þær upplýsingar leyndarmál enda virðist leynd ríkja yfir öllu sem Ísavía gerir. En alls óvænt fengum við hjálp úr ólíklegustu átt.

Ýmis flugfélög felldu niður ferðir frá Keflavík á síðasta ári. Mynd FIB

Eins og við komum inn á í þessari grein okkar, þá skiptir orðið töluverðu máli að upplýsingar um aflýsingar liggi fyrir þegar Jón og Gunna velja sér flugfélag til utanferðar. Hvers vegna? Jú, einfaldlega sökum þess að bæði Wow Air og Icelandair keyra nú rellur sínar sem aldrei nokkurn tíma fyrr og hvert andartak sem vélar beggja aðila eru ekki í loftinu er tapaður peningur.

Afskaplega eðlileg sýn ef reka á flugfélag á hagkvæman máta. Flugið sjálft er jú það eina sem færir flugfélögum seðla og því minni tíma sem þarf að stoppa því feitari er bankabókin.

En gallinn á slíkri keyrslu sá að sökum þess að bæði Wow Air og Icelandair eru tiltölulega lítil og fjárvana flugfélög má alls ekki neitt koma upp á í neinu til að allt fari fjandans til. Hvorugt flugfélag er með rellu á kantinum til að pikka upp farþega á Tenerife ef áætlunarvélin sem það átti að gera tefst fram úr hófi eða beinlínis bilar. Ein biluð vél hefur neikvæða keðjuverkun á allt farþegaflug beggja flugfélaga því bæði kjósa auðvitað að nota eigin vélar til að bjarga því sem bjargað verður fremur en leigja fokdýra aukavél annars staðar frá. Á köflum eru aukavélar ekki einu sinni í boði með skömmum fyrirvara. Sem getur þýtt að flugfélag beinlínis felli niður áætlað flug.

Vitaskuld eru fleiri ástæður fyrir aflýsingu áætlunarflugs. Slæmt veður setur vissulega strik í reikning líka og gera má ráð fyrir að minnst einn eða tvo vetrardaga á ári sé veðurofsi slíkur að öllu flugi er aflýst. Þá hjálpar ekkert heldur ef starfsfólk fer í verkfall eins og gerðist hjá Icelandar fyrr í vetur. Fáist enginn flugmaður til stjórnar er flugi eðlilega sjálfhætt. Enn ein ástæða getur verið, eins og Wow Air er sekt um, að fella niður flug með nokkurra vikna fyrirvara sökum þess að farþegafjöldi nær ekki tilteknu lágmarki.

Með allt þetta í huga er þjóðráð að kíkja á hvaða flugfélög aflýstu flugi frá Keflavík á síðasta ári og hversu oft. Tölurnar koma þér sennilega jafn mikið á óvart og þær komu okkur.

* Reiknað út frá brottfarartöflum Keflavíkurflugvallar árið 2017

1. ICELANDAIR   –   Flugfélagið atarna aflýsti alls 79 flugferðum á síðasta ári. Það er hreint ótrúlegur fjöldi ferða en drjúgum fjölda aflýsinga má tengja við fyrrnefnt verkfall. Það gerir stöðuna ekkert betri fyrir flugfélagið því það er eingöngu þeim sjálfum að kenna að greiða fólkinu sínu ekki nægileg laun til að halda starfseminni gangandi.

2. WOW AIR   –   Ólíkt Icelandair getur herra Mogensen ekki borið verkföllum fyrir sig þegar talið berst að 43 flugferðum sem Wow Air hætti við á liðnu ári. Hér aftur er fjöldi aflýsinga töluvert umfram það sem við hér giskuðum á fyrirfram. Þessi fjöldi aflýsinga er á við tvo til þrjá heila daga í rekstri flugfélagsins á ársgrundvelli hvorki meira né minna.

3. AIRBERLIN   –   Þýska flugfélagið átti í rekstarvandræðum mestallt árið 2017 og það endaði með gjaldþroti þess í lok ársins. Alls var 25 flugferðum þess aflýst frá Keflavík árið 2017. Fjöldi aflýsinga virðist þó undarlega mikill því AirBerlin flaug nú ekki svo oft til og frá landinu. En hér kemur inn í að Ísavía setti farbann á eina vél félagsins hér fyrr í vetur vegna skulda og í kjölfarið hætti flugfélagið við fjölda ferða. Sem skýrir að langmestu leyti fjöldann.

4. AIR GREENLAND   –   Grænlenska ríkisflugfélagið Air Greenland aflýsti ferðum alls 14 sinnum árið 2017. Það kann að hljóma talsvert en við gefum þeim hiklaust frían passa. Það er jú ekki eins og veður sé ekki töluvert vályndara á Grænlandi en hérlendis.

5. AIR ICELAND CONNECT   –   Þetta flugfélag, áður Flugfélag Íslands, hætti við áætlunarflug í 13 skipti á síðasta ári. Við gefum þeim pass á það. Þeir eru jú með smárellur sem þola verr veður og vinda en stærri þotur.

6. SAS   –   Scandinavian Airlines jók við flugframboð til og frá landinu á síðasta ári svo í því tilliti er ekki slæmt að flugfélagið slúttaði alls 11 flugferðum allt árið. Án þess að vita ástæðurnar fyrir víst er fjöldinn samt heldur mikill fyrir okkar smekk.

7. EASYJET  –   Breska lággjaldaflugfélagið hætti 6 sinnum við flug frá landinu á síðasta ári. Einhverjum kann að finnast það mikið en sé tekið tillit til fjölda ferða hingað til lands á ársgrundvelli er þetta barasta frábær árangur. Þetta svona á pari við það sem við hér áttum von á að íslensku flugfélögin myndi sýna.

8. VUELING   –   Spænsk/enska flugfélagið Vueling stendur sig jafnvel og easyJet. Eða reyndar ekki því áætlunarferðir Vueling til og frá Íslandi voru miklu mun færri en easyJet bauð.

Önnur flugfélög sem felldu niður flug oftar en einu sinni 2017 voru Wizz Air, British Airways, Delta, Niki og Norwegian. Sérstaka athygli vekur að hið semí-íslenska Primera Air felldu aðeins niður eitt einasta flug allt síðasta ár. Vel gert þar á bæ.

Vonandi að þetta nýtist ferðaþyrstum á nýju ári. Nú auðveldara að velja þau flugfélög sem EKKI fella niður flug sísona.