Fátt er svo með öllu illt. Þrátt fyrir að fljúga gömlum rellum, stundvísi sé mjög ábótavant og gera út frá flugvelli sem er löngu sprunginn í tætlur hefur Icelandair engu að síður komist á lista Tripadvisor yfir bestu flugfélög Evrópu.

Icelandair eitt af bestu flugfélögum Evrópu samkvæmt Tripadvisor.
Það er frábær árangur enda hér um að ræða einkunnagjöf viðskiptavina sjálfra en ekki sjálfstætt mat spekinga Tripadvisor. Travellers Choice Awards kallast fyrirbærið og mun vera í sextánda skipti sem vefrisinn veitir þau verðlaun.
Þetta í fyrsta skipti sem íslenskt flugfélag kemst á lista en þó um Tripadvisor sé að ræða er óhætt að setja spurningarmerki við listann þetta árið. Ekki vegna þess að Icelandair nær tíunda sætinu heldur vegna þess að besta flugfélag Evrópu er Aeroflot!!!
Víst hefur rússneska ríkisflugfélagið tekið stakkaskiptum til hins betra á síðari árum en flugfélagið hefur þó ekki birst á þessum lista áður. Risastökkið kann þó að vera verðskuldað sé mið tekið af því að Aeroflot hefur víðar komist á toppinn á slíkum listum. Meðal annars hjá Skytrax, Condé Nast og meira að segja National Geographic á síðustu misserum.
Wow Air kemst ekki á lista Tripadvisor yfir tíu bestu lággjaldaflugfélög Evrópu þetta árið. Þann titil tekur flugfélagið Jet2.
Listarnir í heild sinni:
- Aeroflot
- Turkish Airlines
- KLM
- Lufthansa
- Swiss
- Virgin Atlantic
- Finnair
- Austrian Airlines
- Aer Lingus
- Icelandair
- Jet2
- Aegan Airlines
- S7 Airlines
- Monarch
- Air Malta
- Norwegian
- Volotea
- Flybe
- Thomson
- FlyTui







