Húha! Ekki lítill flórinn sem framsóknarmenn skilja eftir sig um allar trissur. Nú kemur í ljós að sá flugskóli Íslands sem menntar hvað flesta til atvinnunáms í flugi er alls ekki með hæft starfsfólk í vinnu.

Herra Árnason framsóknarmaður að sóla sig á Tenerife þó megnið af flugflota stofnunar sem hann veitir forstöðu hafi verið kyrrsettar. Hvað er eiginlega með framsóknarmenn og 100% hugsunarleysi? Skjáskot
Hjálmar Árnason er fyrrum þingsflokksformaður Framsóknarflokksins og það á þeim tíma þegar flokkurinn keyrði í gegn Kárahnjúkavirkjun, lagði blessun sína yfir að Íslendingar tækju þátt í ólöglegri innrás í Írak og opnaði á 90 prósenta íbúðalán til almennings.
Hjálmar fékk bitling þegar hann hætti á Alþingi og sá bitlingur að stjórna flugakademíu Keilis sem menntar flugmenn næstu kynslóðar. Þar á meðal flugmanna sem fljúga með þig og fjölskyldu þína til Alicante í september.
Ekki svo að skilja að Hjálmar viti eitthvað um flug. Það gerði hann ekki ekki fremur en Davíð Oddsson vissi nokkuð um störf Seðlabankastjóra á sínum tíma. En flokkarnir sjá um sína.
RÚV greinir frá því að megnið af vélum Flugakademíunnar sem Hjálmar stjórnar eru alls ekki í lagi þegar allt kemur til alls. Tæknistjóri flugskólans og undirmaður Hjálmars, GLEYMDI nefninlega að endurnýja skírteinið sitt og þess vegna hefur Samgöngustofa kyrrsett megnið af flugflota Flugakademíu Hjálmars Árnasonar.
En Hjálmar sjálfur er að sóla sig á Tene og kemur af fjöllum samkvæmt frétt RÚV. Ekkert kemur fram um að stjórinn ætli að drífa sig heim með fyrstu vél og sparka í undirmannarassa. Neibb, bíðum bara eftir að Árnason klári dúlleríið á Tene meðan Flugakademían útskrifar fleiri vafasama flugmenn til starfa…







