Hmmm. Þjónustufyrirtæki sem fær tæplega fjögur þúsund bótakröfur inn á borð til sín í hverjum einasta mánuði getur varla verið vel rekið eða hvað? Það er fjöldi bótakrafna sem Icelandair fær á sig hvern mánuð á annatíma.

Flott vél Icelandair en líka sú eina sem framleidd er á þessari öld. Mynd Boeing

Ók, engar fréttir fyrir lesendur Fararheill. Þjónusta Icelandair á voða lítið skylt við þjónustu og svo hefur verið í mörg ár eins og við höfum greint frá síðastliðin níu ár eða svo. Þið þekkið þetta: Þú ert númer 102 í röðinni og við hlökkum til að heyra í þér…

Nema hvað, í ljós kemur að sama flugfélag og leigir frekar 20 ára gamlar rellur frá Afríku í stað þess að einhenda sér í að endurnýja flotann með nýjum og sparneytnum vélum, fær yfir sig hvorki fleiri né færri en tæplega FJÖGUR ÞÚSUND BÓTAKRÖFUR í hverjum einasta mánuði á annatímum!!!

Á mannamáli merkir þetta að hver einasti farþegi um borð í vélum félagsins í þrjá daga samfleytt í hverjum mánuði fer fram á miskabætur frá Icelandair. Þrír dagar í hverjum mánuði hjá Icelandair eru hreint og beint tap miðað við fjölda bótakrafna.

Hvernig vitum við þetta? Jú, þjónustustjóri Icelandair, Ásta Benónýsdóttir, skýrir frá þessu í viðtali við erlent þjónustufyrirtæki sem á að sjá um að hjálpa flugfélaginu að bæta þjónustuna. Líklega verið ódýrara fyrir Ástu að lesa vef Fararheill en við höfum endrum og sinnum bent Icelandair á að koma fram við fólk eins og fólk. Það er alltaf ávísun á góðvild alls staðar í heiminum.

En grínlaust, ef tæplega fjögur þúsund einstaklingar eru súrir og fúlir út í Icelandair hvern einasta mánuð á annatíma er ekki furða að hlutabréf fyrirtækisins hrapi hraðar en æra Ólafs Ólafssonar hjá Samskipum…