Rúmum sólarhring eftir að Icelandair er í fréttum allra fjölmiðla sökum hrapallegs gengis flugfélagsins á hlutabréfamörkuðum fellir flugfélagið niður hvorki fleiri né færri en ÞRJÁR áætlunarferðir. Algjör kjörleið til að bæta stöðuna.
Það er leiðinlegt þegar risafyrirtæki á íslenskan mælikvarða og að auki fyrirtæki sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða okkar landsmanna, reynir sitt besta til að leyna því að fyrirtækið er að fella niður flugferðir án þess að blikka auga. Í öllu falli finnst ekki múkk um niðurfellingarnar á vef Icelandair.
Aflýsingar eru orðnar töluvert vandamál hjá flugfélagi sem felldi ekki niður flug nema í fulla hnefa og fellibyl og ofsaveður með hér fyrir nokkrum misserum. Nú eru felldar niður flugferðir sísona nánast á daglegum basa.
Á þessu kunna að vera skýringar. Til dæmis þarf nákvæmlega ekki neitt til að setja alla áætlun Icelandair úr skorðum sökum þess að vélar flugfélagsins eru keyrðar þessi dægrin 18 til 20 tíma á dag. Sem er bara góður rekstur nema hvað að Icelandair hefur enga vararellu á kantinum ef eitthvað fer úrskeiðis. Sem merkir að ef ein rella bilar hefur það keðjuverkandi áhrif á 60 næstu flug á eftir og þar með fleiri þúsundir farþega í fleiri sólarhringa.
Við þær aðstæður að rella bili er eðlilegt að flug sé fellt niður og þó það sé almennt fíflalegt að reka fyrirtæki sem ekki hefur neitt plan B þegar eitthvað kemur upp á er það hámark fíflaháttarins að reyna að fela fíflaganginn. Fyrir utan farþega og aðstandendur þeirra sem áttu bókað flug í þeim ferðum sem felldar voru niður þennan daginn og aðra, er hvergi staf að finna um hvers vegna flugi er aflýst. Né heldur fólki bent á leiðir til að leita réttar síns vegna málsins
Vantar starfsfólk? Biluðu rellur? Eða hvað annað veldur því að þrjár áætlunarferðir detta dauðar niður á einum skitnum sólarhring? Og hvers vegna er engin viðvörun vegna þess á vef Icelandair?
Partur af skitinni þjónustu Icelandair. Svo er fólk hissa að ekki sé sérstök eftirspurn eftir hlutabréfum fyrirtækisins…







