Á vef Wow Air má finna sérstaka viðvörun um tafir á flugi fyrirtækisins til og frá Montreal í Kanada. Sem er til fyrirmyndar að vara viðskiptavini við hugsanlegu veseni. En ekki eitt orð né viðvörun um sólarhrings töf frá Berlín.

Svo lítið sem 24 tíma töf á rellu Wow Air frá Berlín þennan sólarhringinn. Það þýðir bætur á línuna.
Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef Keflavíkurflugvallar er áætlað að rella Wow Air frá Berlín lendi í Keflavík klukkan fjögur í nótt. Ekkert að því annað en að upprunalega átti rellan að lenda klukkan tvö í dag. Það er sem sagt sólarhrings töf á vélinni til landsins.
Ekki finnast upplýsingar um ástæður þessarar miklu tafa frá Berlín. Sem er oftast samasemmerki við að flugfélagið hefur ekkert sér til málsbóta og vill sleppa við að greiða bætur.
En bætur fá þeir sem um sækja og það tæplega 50 þúsund krónur í lommann með því einu að hafa samband við Samgöngustofu. Tólf tíma töf er hundrað prósent ávísun á bætur þó auðvitað Wow Air taki sér fleiri mánuði til að greiða út.
Engu að síður er 50 kallinn sárabót fyrir súra langtímadvöl á flugvelli eða döpru hóteli. Þú þarft bara að sækja það.