Fjöður í hatt Icelandair þennan daginn og það frá breskum neytendum. Flugfélagið valið það fjórða besta á skemmri flugleiðum frá Bretlandi.

Fjórða besta flugfélagið á skemmri flugleiðum að mati Breta.
Hér um að ræða könnun neytendatímaritsins Which! sem er langþekktasta neytendablað Bretlands og mikið mark á því tekið.
Þeir spyrja tæplega átta þúsund lesendur sína árlega út í bestu flugfélögin og í þetta sinn hreppir Icelandair fjórða sætið á eftir SAS, Aurigny og Turkish Airlines sem hreppti gullið.
Fátt kemur að öðru leyti á óvart í könnun Which! Hefðbundin flugfélög þykja klárlega vænlegri kostur en lággjaldaflugfélög almennt og ekki skrýtið því þjónusta hjá þeim síðarnefndu vitaskuld skorin vel við nögl. Breska lággjaldaflugfélagið Jet2 nær þó 5. sætinu og Eurowings því sjötta. Wow Air kemst ekki á blað og risarnir í lággjaldabransanum easyJet og Ryanair komast ekki á topp tíu listann.
- Turkish Airlines
- Aurigny
- SAS
- Icelandair
- Jet2
- Eurowings
- Norwegian
- Swiss
- Lufhansa
- Air Lingus







