Byrjum á smá gestaþraut. Þú hefur annars vegar val um níu daga Kúbuferð með millilendingu og stoppi í Kanada fyrir 1.039.800 krónur á par. Hins vegar sextán daga Kúbuferð með millilendingu í Kaupmannahöfn fyrir 949.600 krónur á parið. Hvað velur þú?

Leifar Fidel Castro finnast á merkum stað í Santiago de Cuba en sú borg er af sumum talin skemmtilegri en Havana sjálf. Mynd The Capture

Ok, gefum aðeins fleiri vísbendingar. Í fyrri ferðinni er komið við í Varadero, Cienfuegos, Pinar del Rio, Havana og Trinidad. Í þeirri seinni er stoppað í Havana, Pinar del Rio, Santiago, El Cobre, Camagüay, Trinidad, Santa Clara og Santa Maria.

Fyrri ferðin kostar parið 103.890 hvern einasta dag ferðarinnar en parið greiðir samtals 56.850 á dag í seinni ferðinni. Í báðum ferðum er töluvert matarkyns í boði og alveg ágæt hótel og gististaðir.

Hvað velur þú?

Kæmi þér á óvart að vita að fyrri ferðin, þessi skemmri og dýrari, er til sölu hjá ferðaskrifstofunni Vita og auglýst sem páskaferð þó heimkoma sé á páskadegi og því tæknilega um fyrir-páskaferð að ræða. Hin ferðin er til sölu hjá dönsku ferðaskrifstofunni Risskov en sú fær almennt mjög háa einkunn meðal þarlendra.

Töluvert er innifalið í báðum ofangreindum ferðum en auðvitað stóri munurinn sá, fyrir utan verð og lengd, að íslenskur fararstjóri fylgir fólki hjá Vita en danskur aðili ferjar hópinn auðvitað hjá Risskov. Það kann að aftra einhverjum þarna úti en það er jú fjöldi Íslendinga sem kann ágæt skil á dönsku og þess utan kann Daninn ensku mætavel ef út í er farið.

Ólíkt íslensku ferðinni þar sem flogið er til Kanada og stoppað í sólarhring áður en fram er haldið er um beint flug að ræða frá Köben. Við verðum þó að komast þangað vitaskuld og könnun á fargjaldi fyrir og eftir páskatúr Risskov fæst fyrir par kringum 40 þúsund krónur með tösku báðar leiðir. Sú upphæð er talin með í ofangreindri upphæð.

Sem sagt tæplega helmingi lengri túr um þessa gullfallegu eyju Karíbahafsins og það á helmingi lægra verði í þokkabót.

Hvað velur þú?