Flesta munar um tæpan 30 þúsund kall. Jafnvel skattaskjólsfyrirtæki á borð við Samherja og Samskip.

Saga Class farrými Icelandair er nokk á pari við viðskiptafarrými British Airways. Engu að síður er Icelandair að heimta töluvert meiri pening fyrir settið. Mynd JohnnyJet
Svo vill til að einn úr ritstjórn eyddi eitt sinn óvænt tíma með einum af þremur sonum afar virts og háttsetts manns í Sádí-Arabíu. Sá var frelsinu feginn enda sloppið frá fjórum lífvörðum sínum sem honum fylgdu frá morgni til kvölds og hló og skemmti sér jafn dátt og aðrir að hlutum sem hann fengi bágt fyrir í heimalandinu langt fram eftir nóttu.
Þó kauði kæmi á óvart með brosmildi og alúð þegar laus úr viðjum stóð eftir hjá viðstöddum hversu nískur umræddur maður var. Reyndar vanur því að lífverðirnir fyrir hönd pabba gamla borguðu reikninginn hvar og hvenær sem er en jafnvel þegar hann steig inn í heim hins venjulega manns tók hann ekki í mál að borga fyrir eitt né neitt. Þessi milljónamæringur naut lífsins á kostnað venjulegs fólks og skammaðist sín ekki hætishót. Alla vega um stundarsakir.
Atvikið sannfærði marga þann dag að það er ekki fátækasta fólkið sem er nískast á peninga heldur þvert á móti þeir sem nóg eiga af þeim og þurfa engar áhyggjur að hafa. Þar finnst níska á heimsmælikvarða.
Af því leiðir að mjög líklega eru fleiri milljóna- og milljarðamæringar þarna úti sem horfa í hvern einasta eyri og kannski finnast þeir hjá Samskip, Samherja eða Sjólaskipum. Kannski ekki hjá Sjólaskipum reyndar því það fyrirtæki heyrir sögunni til. En þeir sjómenn sem þar unnu skutu undan hundruðum milljóna og lögðu á bók í skattaskjólum hér og þar. Þeir tóku ekki í mál að setja hluta auðsins í sameiginlegar hirslur landsmanna svo við gætum lagað vegi, stytt biðlista á sjúkrahúsum eða gefið heimilislausum húsaskjól. Neibb, því meira sem fólk græðir því minna vill það deila með sér.
Það er því þjóðráð fyrir háttsett Sjólafólk, Samherjafólk og Samskipsfólk sem sparar aurinn hvar sem hægt er að kaupa fremur sæti á viðskiptafarrými British Airways en Icelandair sé hugmyndin að skottast til London eða heim frá London. Í ljós kemur við netta úttekt Fararheill að allt að fjórðungsmunur er á fargjaldinu milli þessara tveggja aðila.
Við völdum nokkrar dagsetningar af handahófi hjá báðum aðilum og tékkuðum á á lægsta fargjaldi á viðskiptafarrými fram og aftur með báðum flugfélögum. Fyrir þá sem ekki vita flýgur British Airways reglulega milli Íslands og Englands og hefur gert um hríð.
Áður en við skottumst í samanburðinn er ráð að taka fram að „varan“ hjá báðum flugfélögum er svipuð. Góð djúp og breið leðursæti, frír matur, netaðgengi og straumur og toppþjónusta plús auðvitað betri sæti í betri stofum flugvallanna meðan beðið er. Flugvélar British Airways þó töluvert yngri en vélar Icelandair.
* Úttekt gerð kl. 22 þann 15. desember 2016. Leitað samtímis hjá báðum aðilum.







