Besta leiðin til að komast að því hvort raunveruleg samkeppni ríkir í flugi til og frá landinu er að leita að fargjöldum á extra vinsælum leiðum með skömmum fyrirvara. Miðað við það er samkeppni af skornari skammti en upplýsingagjöf hjá MAST.

Samkeppni í orði en varla á borði. Samsett mynd

Þúsundir íslenskra námsmanna sækja heim um jólin héðan og þaðan úr veröldinni. Taðreykt hangikjötið heillar þá sem lifað hafa á bauna- og núðlusúpum sem nemar erlendis við bágan kost um margra mánaða skeið. Og kannski tengslin við vini og ættingja í og með líka 🙂

En gallinn við gjöf Njarðar sá að nemar hafa alla jafna úr litlu að moða. Námslán svo lág að margir komast ekkert úr út húsi og hvað þá erlendis nema ættingjar leggi í púkk og bjóði þeim beinlínis heim yfir hátíðina. Jafnvel þá er nótt að mestu úti því prófum í mörgum skólum erlendis lýkur ekki fyrr en um seint og síðir korteri fyrir jól. Þar sem prófdagsetningar liggja oft ekki fyrir fyrr en vel er liðið á desembermánuð geta áhugasamir ekki nýtt sér að kaupa túrinn með löngum fyrirvara því óvíst er hvenær törninni lýkur.

Sem varð þess valdandi að við kíktum á fargjöld Wow Air og Icelandair heim og aftur út eftir hátíðina með skömmum fyrirvara. Hvað er að frétta þar? Er „flugfélag fólksins“ að stúta gömlu konunni? Icelandair að koma á óvart? Birgir hættur með Þorgerði?

Ekki fer mikið fyrir samkeppni frá Köben og heim aftur milli þessara flugfélaga. Við könnuðum verðið á flugi fram og aftur 18. desember og út aftur 6. janúar sem eru LÆGSTU fargjöld sem finnast hjá báðum flugfélögum þegar þetta er skrifað. Verðmunur milli þessara tveggja aðila á þessum dagsetningum á ódýrasta farrými? Heilar 1.859 krónur Wow Air í vil (Wow Air 45.495 / Icelandair 47.354). Þriðja flugfélagið sem býður flug milli þessara staða, SAS, er í hreinræktuðu rugli og býður flug fram og aftur lægst á 73.355 krónur og það án alls farangurs.

Töluvert betra ástand er frá London til Íslands fyrir jólin og heim aftur skömmu eftir áramót. Enn hægt að finna fargjald báðar leiðir með Wow Air 22. desember til 5. janúar niður í 23.995 krónur með tösku báðar leiðir. Það er frábært verð með svo skömmum fyrirvara.

Sama verður ekki sagt um Icelandair. Allra lægsta boð þess flugfélags kringum þessar dagsetningar er 40.696 krónur báðar leiðir. Taska innifalin þar líka en verðmunurinn ekki nema 70 prósent hvorki meira né minna.

Breska lággjaldaflugfélagið easyJet er heldur ekki að gera neitt frábært mót frá London rétt fyrir jól og aftur út eftir áramótin. Lægsta verð þar á bæ með tösku meðferðis rúllar í 26 þúsund krónur eða svo.

Viðurkennt skal að við erum jú orðin góðu vön. Þegar Icelandair var eitt um hituna hér um síðustu aldamót kostaði fargjald fram og aftur um jólavertíðina hátt í hundrað þúsund krónur að jafnaði. Það vitum við sökum þess að tvö úr ritstjórn voru í námi á þeim tíma erlendis og kíktu ítrekað heim yfir jólin. Að því gefnu hefur meira að segja Icelandair stórbætt sinn árangur.

En sé mið tekið af því að hefðbundin fargjöld utan þessa vinsæla tíma fást oft og yfirleitt niður í fimmtán þúsund krónur með bæði Wow Air og easyJet og vel undir 30 þúsund krónum hjá Icelandair er óhætt að fullyrða að betur má ef duga skal og að samkeppni sé enn af of skornum skammti.

* Í ofangreindum dæmum er taska með hjá Wow Air