Alltof margir þarna úti nenna lítið að hugsa og það vita markaðsmenn hjá stórfyrirtækjum. Þess vegna hafa fyrirtæki á borð við Booking.com og Hotels.com náð miklum vinsældum þrátt fyrir að vera oft á tíðum með hæsta mögulega verð á gistingu.

Margir bóka sitt gegnum Hotels.com. Það er slæm hugmynd.

Þeir sem ekki hafa nennu til að velta hlutum fyrir sér, gera verðsamanburð eða setja spurningarmerki við auglýsingamennsku eru hafðir að fíflum. Og fífl eru jú reiðubúin að borga meira fyrir vörur og þjónustu en hinir hugsandi.

Við höfum oft og áður skrifað greinar um þetta en það er vatn af gæs því við hér hjá ritstjórn heyrum sýknt og heilagt hversu flott er að bóka hjá risunum í hótelbókunarbransanum. Það því kannski ástæða til að láta í okkur heyra einu sinni enn og það með dæmum eins og áður. Dæmum sem sýna til dæmis fram á að hin fræga Hotels.com er undantekningarlítið MUN DÝRARI kostur en að bóka gistingu gegnum Fararheill.

En kannski er þér nákvæmlega sama um peningana þína…

* Fjögur handahófskennd dæmi af vef Hotels annars vegar og okkar vef hins vegar. Í öllum tilvikum var leitað fyrst hjá Hotels og síðar hjá okkur og lægsta verð borið saman. Úttekt gerð kl. 23:30 þann 12. desember 2016. Tilboð Hotels.com ofar en tilboð Fararheill neðar í hverju tilviki fyrir sig.

Tveggja manna herbergi í Malaga á Spáni 8.- 9. mars 2017

Tveggja manna herbergi í Vín, Austurríki 15.- 16. janúar 2017

Gisting fyrir tvo eina nótt í Reykjavík 8. – 9. apríl 2017

Nótt fyrir tvo í Madríd á Spáni 6. – 7. júní 2017

Þó ekki sé hægt að útiloka að Hotels.com bjóði lægra verð á sömu gistingu einhvers staðar í veröldinni þá hafa ítrekaðar kannanir okkar leitt í ljós að hið gagnstæða er nánast alltaf raunin. Hotel.com er ein dýrasti hótelbókunarvefur heims og þeir blása ryki í augu fólks líka með því að auglýsa ýmis „sértilboð“ sem reynast engu að síður dýrari kostur en hefðbundið verð á hótelvef Fararheill.

Ekki láta plata þig!