Jólaandinn í hnotskurn hjá Icelandair…

Spurning er hvort flugfélagið Icelandair sé orðið of stórt eða sé einfaldlega illa rekið. Það þarf allavega æði köld hjörtu til að neita að endurgreiða flugmiða fólks sem er alvarlega slasað eftir slys.

Þú kaupir tvo flugmiða til Evrópu með Icelandair. Gleði í hjarta yfir langþráðu fríi og stopp á Íslandi í kaupbæti. Ekkert nema gott um það að segja. Þetta verður ein eftirminnilegasta ferð sem þú hefur farið.

En svo lendir þú í alvarlegu slysi. Það er ekið á þig. Báðir fætur brotna og það sem verra er: heilaskemmdir í ofanálag.

Óhætt að segja að ferðin langþráða er hætt að vera spennandi kostur. Enginn að njóta Geysis, Gullfoss, Champs-Elysees eða Eiffel-turnsins yfirdópuð af verkjalyfjum, í hjólastól og enn síður ef um heilaskemmdir er að ræða.

Hvað gerir flugfélagið sem um ræðir? Flest okkar þurfa ekkert að hugsa tvisvar um hvort endurgreiða eigi flugmiðana í tilfelli sem þessu. En slík er samúðin og vinsemdin hjá Icelandair rétt fyrir jólahátíðina að flugfélagið harðneitar að endurgreiða krónu eða dollar.

Allt í lagi fyrir hugsandi fólk þarna úti að muna atvik sem þetta næst þegar hugljúf og rándýr ímyndarauglýsing Icelandair rúllar í sjónvarpinu.

Þvílík viðurstyggð Icelandair. Skammist ykkar.