Þrír áfangastaðir bætast við leiðakerfi Iceland Express frá og með næsta sumri en þá hyggst flugfélagið hefja reglulegar ferðir til Edinborgar í Skotlandi, Belfast á Norður Írland og Dublin á Írlandi.
Verður um þrjár ferðir að ræða í viku hverri til allra þriggja áfangastaðanna.
Er þetta í viðbót við fjölgun áfangastaða flugfélagsins vestanhafs en næsta sumar markar líka upphaf ferða Iceland Express til Chicago og Boston.






