Forsvarsmenn bresku ferðaskrifstofunnar Discover the World hafa óskað eftir að iðnaðarráðherra rannsaki léleg vinnubrögð flugfélagsins í kjölfar fjölda kvartana viðskiptavina.
Hefur ferðaskrifstofan leigt vélar flugfélagsins íslenska til ýmissa verkefna en það hefur komið hörmulega út sökum tafa, seinkana og lélegrar skipulagningar flugfélagsins og komið óorði á íslenska ferðaþjónustu að mati forsvarsmanns fyrirtækisins erlenda. Hefur það nú hætt viðskiptum við flugfélagið.
Matthías Imsland, forstjóri flugfélagsins, sagði við fréttastofu Stöðvar 2 í gærkvöldi að deilur stæðu við umrætt fyrirtæki um greiðslur fyrir ýmis verkefni og horfa bæri á kvörtunina í því ljósi.
Ritstjórn Fararheill.is þekkir vel til fjölmargra einstaklinga sem kvartað hafa yfir því sama og umrædd ferðaskrifstofa gegnum tíðina. Þá hefur ritstjórn tvívegis undanfarið sýnt fram á að seinkanir eru regla hjá Iceland Express en ekki undantekning. Þær greinar má sjá hér og hér.






