Illir vindar blása nú um strendur Flórídaríkis í Bandaríkjunum. Illir að því leytinu til að olía sem pumpast látlaust úr iðrum jarðar í Mexíkóflóa eftir sprengingu í olíuborpalli berst nú tiltölulega hratt með veðri og vindum að ströndum Flórída. Enda olía þar á landi er óhætt að jarða vinsældir Flórída sem ferðamannaparadísar.
Að sögn Reuters fréttastofunnar á Flórída það mikið undir ferðamannaiðnaðinum að minnsta mengunarslys þar ylli miklum skaða. Til marks um hversu mikilvæg ferðamennskan er koma 22 prósent allra tekna ríkisins á ársgrundvelli úr vösum ferðamanna í ríkinu.
Þó stærstur hluti ferðamanna sæki heim Orlando og Miami þá er því spáð að nái umtalsverð olía á annað borð að vesturströnd Flórída gangi einnig olía umhverfis allan skagann í kjölfarið sökum hafstrauma á svæðinu. Olía gæti því þakið hverja einustu strönd ríkisins ef allt fer á versta veg.
Og það lítur illa út. Ekki aðeins gengur ekkert að hefta olíulekann heldur er öllu verra að fellibyljatímabilið er að hefjast og ekki þarf marga slíka til að þeyta olíu um mun víðara svæði en nú er. Er engin tilviljun að ríkisstjóri Flórída lýsti yfir neyðarástandi þann 20. maí síðastliðinn.
Enn sem komið er hefur engin olía komið að ströndum en fyrir utan stöku litla bletti. En hættan eykst með hverjum deginum.






