Ferðaskrifstofunni GB Ferðir finnst ástæða til að auglýsa sérstaklega þrjú laus sæti í skíðaferð til Austurríkis eftir tæpa þrjá mánuði.
Er þar um ferðir til Kitzbühel að ræða sem er sannarlega einn af bestu skíðastöðum þess ágæta lands en ritstjórn Fararheill.is undrast stressið. Ekki eins og enn séu ekki tveir og hálfur mánuður til að selja umrædd þrjú sæti.
Í umræddri ferð er gist á fimm stjörnu hóteli, Royal Spa Kitzbühel, sem fær toppeinkunn enda glænýtt. Hótelið er þó ekki í Kitzbühel eins og auglýsing GB Ferða og reyndar nafn hótelsins gefur til kynna heldur í bænum Jochberg skammt frá Kitzbühel. Prísinn á mann fyrir vikutúr er 249 þúsund krónur.
Heimasíða GB Ferða hér.






