Einn kostur sem Íslendingar hafa verið ragir að nýta sér gegnum tíðina er að bóka gistingu erlendis gegnum þekktar íbúðaleigur en þar má oft finna hin bestu tilboð á gistingu og með litlum fyrirvara getur afsláttur frá venjulegu verði numið allt að 40 prósent.

Seint koma sumir en fá þá stundum langbestu kjörin.

Seint koma sumir en fá þá stundum langbestu kjörin.

Það er nefninlega svo að fjölmargir þeirra sem leigja út íbúðir sínar eða hús erlendis gera það meira af nauðsyn en vilja sökum bágrar fjárhagsstöðu. Sérstaklega á þetta við um íbúðir á Spáni en þar eru í dag um 300 þúsund íbúðir og hús sem standa auð meðfram Costa Blanca strandlengjunni samkvæmt tölum sem dagblaðið El Pais tók nýlega saman. Eigendur annars eins fjölda íbúða eiga bágt með að standa í skilum og það er hér sem hið fornkveðna „eins dauði er annars brauð“ hittir naglann á höfuðið. Það eru þessir aðilar sem kjósa fremur að gefa vænan afslátt af leiguverði þegar nær dregur til að fá þó eitthvað í stað þess að fá ekki neitt.

Það má því segja að í slíkum tilfellum verði þeir síðustu fyrstir og þeir sem ekki stressa sig yfir íbúðaleysi þótt vika sé í Spánarferðina gætu sannarlega fengið bestu eignir upp í hendurnar á lágmarksverði.

Á hinum vinsæla sumarhúsavef Villarenters, sem Fararheill hefur ágæta reynslu af, er að finna tugþúsundir eigna um víða veröld en í stað þess að eyða tíma að skoða það allt væri ráð að fletta upp á „late deals“ þar sem sjá má eignir á afsláttarkjörum þegar skammt er í ferð. Mjög algengt er að finna 20 til 30 prósent afslátt af uppsettu verði og það munar um það fyrir okkur flest.

Þar inni þegar þetta er skrifað er til að mynda ágæt íbúð miðsvæðis í Torrevieja með sundlaug og 400 metra frá ströndinni á 30 þúsund krónur fyrir vikuna. Það merkir að dagurinn kostar 4.200 krónur rúmar eða 2.100 krónur á hvort par. Fyrir stærri fjölskyldur má finna sjö manna penthouse í bænum Estepona á Costa del Sol niður í 39.700 krónur vikuna. Nú eða sex manna villu í Cabo Roig fyrir  48 þúsund krónur miðað við miðgengi dagsins. Og hér er aðeins um tilboð einnar villuleigu af tugum að ræða.

Sjálfsagt að skoða gott fólk og bera saman. Villarenters hér.