Ferðaþyrstir hafa um sólarhring til stefnu til að kynna sér og þá bóka sértilboðsfargjöld SAS til ýmissa áfangastaða út þetta ár.
Flugfélagið auglýsir afsláttarfargjöld til ýmissa borga á vef sínum þessa stundina en SAS flýgur einungis milli Oslóar og Keflavíkur í beinu flugi. Hægt er að finna fargjöld þangað og heim aftur fram á sumarið undir 30 þúsund krónur sem er allbærilegt verð.
Að sama skapi er hægt að finna eitt og eitt tilboð lengra út í heim með millilendingu á bærilegu verði og SAS hefur á stundum boðið aldeilis ágætar Asíuferðir á mjög samkeppnishæfu verði.
Sjálfsagt að skoða það sem í boði er hér ef vera skyldi að hér sé ferðin sem þú leitar eftir.








