Langar þig allt í einu að bjóða elskunni til London yfir páskana fyrivaralaust? Þá er vonandi að bunki sé inni á bankabókinni því til London er alls ekki komist undir 60 þúsund krónum aðra leiðina og vart undir 110 þúsund fram og aftur sé farið keypt núna.

Stökk til London um páskana og heim aftur kostar par varla undir 110 þúsund krónum.

Stökk til London um páskana og heim aftur kostar par varla undir 110 þúsund krónum.

Við kíktum á fargjöld Wow Air, Icelandair og easyJet til London næstu dagana fyrir páska og leituðum uppi lægsta hugsanlega fargjald hjá þeim öllum.

Sjá má á meðfylgjandi töflu hvernig leikar fóru en almennt má segja að meðan fólk hefur ekki farangur með sé ódýrast að fara með easyJet. Hægt er að komast út með þeim fyrir 28.300 krónur þegar þetta er skrifað og heilt yfir vikuna fyrir páska er easyJet að bjóða betur en bæði íslensku flugfélögin. Munar á stundum miklu eins og þann 17. apríl þegar komist er út með easyJet fyrir 29.540 krónur en fyrir tæpar 42 þúsund með Wow Air og rúmar 48 þúsund með Icelandair.

Athygli vekur að dýrara er að kaupa miða með Wow Air en Icelandair á stöku dagsetningum en eins og fólki er kunnugt er enginn farangur innifalinn í verði Wow Air né heldur hjá easyJet.

* Verð á vefum flugfélaganna kl. 11 þann 7. apríl aðra leið til London fyrir og um páskana. Verð easyJet breytt í krónur miðað við miðgengi dagsins. Hafa skal í huga að verð breytast ört og hratt hjá öllum aðilum. Enginn farangur hjá easyJet né Wow Air en öll gjöld og skattar.