Lesi maður eina einustu ferðalýsingu íslenskra ferðaskrifstofa á áfangastað hefur maður lesið þær allar. Enginn einasti ferðaþjónustuaðili virðist hafa metnað eða næga virðingu fyrir viðskiptavinum sínum til að gera betur en bulla tóma steypu.
Síðasta dæmið er Wow Air sem þó stærir sig af því að bjóða fólki mest og best.
Kíkjum á eitt dæmi um lýsingu á Alicante sem uppi er á vef Wow Air þegar þetta er skrifað í byrjun desember. Innan sviga eru helstu athugasemdir.
Blómlegir garðar, gleði og glaumur hvert sem litið er. [Nei, það er tiltölulega kalt í Alicante og ritstjórn Fararheill vildi mjög gjarnan fá sendar myndir af öllum blómlegu görðunum]
Klaustur, kirkjur og kastalar til að gægjast inn í [Nei, það er ekkert klaustur í Alicante]
og svo er Miðjarðarhafið við fætur þér. Og svo er það borgarstjórinn, hún Sonja. [Ætlar borgarstjórinn Sonja að taka á móti okkur eða hvað nákvæmlega kemur það íslenskum ferðamönnum við?]
Dreymir þig um að liggja í fínkorna sandi eftir góða kvöld- eða næturskemmtun [Sannarlega en er ekki dálítið kalt að liggja í fínkorna sandi þegar hitastigið er um átta gráður?]
láta bylgjur hafsins leika við hlustir þínar, hafa einn kaldan við hendina og kæla þig öðru hverju í sjónum? [Nei, veistu mér er alveg nógu kalt]
Eða viltu byggja sandkastala með börnunum þínum og busla í flæðarmálinu. [Alls ekki, okkur er ennþá kalt og barnaverndaryfirvöld í Alicante gerðu sennilega athugasemdir ef ég færi með börnin mín í sjóinn þessa dagana]
Vissir þú að ströndin á Alicante stendur við samnefnda borg í Valencia-héraði á Spáni en það eru aðallega margrómaðar strendurnar sem laða til sín þúsundir ferðamanna á hverju ári.[Kannski, en margar stranda í Valencíu eru ekki með Bláa flaggið til merkis um bestu og hreinustu strendurnar og því vart margrómaðar]
Á Alicante er töluð spænska en flestir tala ensku og jafnvel fleiri tungumál, eða eins og gamli maðurinn sagði sem aldrei lenti í tungumálaerfiðleikum: maður bætir bara o-i fyrir aftan íslenska orðið eins og vín-o og WOW, rauðvínið er komið á borðið! [Þetta er kannski skondið ef þú ert tólf ára. Við hin eigum skilið aðeins meiri virðingu]
Í Alicante er gjaldmiðillinn evra. Hitastigið er alltaf gott en rokkar frá 16°C um háveturinn á daginn og upp í 32°C yfir hásumarið [Ævintýralegt rugl er þetta. Hitistigið þegar þetta er skrifað eru sex gráður]
Fyrir utan strandlífið [hvaða strandlíf?]
er margt að skoða og gera í Alicante og nágrenni þess. Það er nánast skylda að skoða kastalann, Catillo de Santa Barabara [Reyndar Castillo de Santa Bárbara en ok]
en útsýnið þaðan er er eintakt. Fyrir þá sem hafa gaman af kirkjuskoðun þá er Santa María kirkjan frá 14-16. öld afar falleg. Það er skemmtilegt að rölta um höfnina í Alicante og upplifa sjávarstemmninguna, taka göngutúr um El Palmeral garðinn og El Ertea garðinn eða lygna augununum undir pálmatrjánum við Explanada de España. [OK en þú ert ein um það]
Listrænir ættu að heimsækja Collecia Capa sem er stærsta safn nútímaskúlptúra á Spáni og fyrir ævintýragjarna má mæla með fornleifasafninu, Museo Arquelógico Procvincial. [Fyrir það fyrsta heitir þetta safn Colección Capa og er staðsett í kastalanum Castillo de Santa Bárbara]
Fyrir sjóara er sigling til Tabarca-eyja tilvalin [Ólíklegt. Þriggja tíma sigling fram og til baka og eyjan er í eintölu] og einnig eru þar stærstu hellahvelfingar á Spáni í Canlolbre.[Sem heitir raunar Canelobre] Þá er fjöldi góðra golfvalla í nágrenni Alicante.
Ágætt að Wow Air haldi niðri kostnaði svo við getum flogið ódýrar en væri ekki betra fyrir alla aðila að bjóða upp á þó ekki væri nema oggupons fagmennsku. Að minnsta kosti einhvern sem hefur farið á viðkomandi stað.
Meira hér hafi fólk áhuga á bulli.






