Tíðindi

Kannabis í beinu flugi

  06/12/2012janúar 12th, 2014No Comments

Ögmundur Jónasson verður kannski ekki hrifinn en vilji fólk reykja kannabis án þess að eiga á hættu að íslenskir lögreglumenn brjótist inn og séu með leiðindi er Icelandair með svarið. Flugfélagið flýgur til beggja þeirra staða þar sem kannabisreykingar eru orðnar eða að verða löglegar og það á almannafæri.

Þetta er afleiðing beins lýðræðis og er því af hinu góða hvað sem Ömmi segir.

Um er að ræða Seattle í Washington og Denver í Kolóradó en samhliða forsetakosningum í Bandaríkjunum kusu íbúar um lögleiðingu kannabisefna og meirihluti var því hlynntur. Ergo: kannabisreykingar eru jafn löglegar og í Amsterdam í Hollandi.

Segir frá því á vef Arthur Frommer, útgefanda Frommers ferðahandbókanna, að vart hafi orðið töluverðar aukningar ferðamanna til beggja borga eftir að ljóst varð að kannabisreykingar verða þar leyfðar.

Ef marka má alríkislögregluna er kannabis enn ólöglegt en það stríðir gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna sem kveður á um að hvert fylki ákveði fyrir sig þau lög og reglur sem í viðkomandi ríki gilda hverju sinni.

Það er því kannski billegra að versla eins og eina ferð með Icelandair heldur en taka áhættuna af því að bræla kannabis hér heima eins og virðist færast mjög í vöxt ef marka má tilkynningar lögreglu.