Það er kannski ekki á allra færi að eyða nótt á besta hótelinu í London sökum kostnaðar en almennt verð á nótt þar er kringum 80 þúsund krónur.
Hótelið, Hotel 41, er langbesta hótelið í allri London samkvæmt álitsgjöfum á Tripadvisor og það er ekki lítið afrek því tæplega 1100 hundruð hótel eru alls í borginni. Þá var þetta hótel í öðru sæti í þjónustukönnun Conde Nast á síðasta ári líka.
Hótelið er frábærlega staðsett við Buckingham Palace Road, steinsnar frá drottningunni í Buckingham höll. Hér er töluverður íburður og maturinn þykir góður en velflestir sem tjá sig segja líka þjónustuna fyrsta flokks.
En hvað kostar svo nótt hér ef við leitum á hótelbókunarvél Fararheill að svona hefðbundnu herbergi?
Við höfum fundið herbergi allt niður í 57 þúsund krónur með sköttum og gjöldum. Að sama skapi er lægsta verð á vef hótelsins sjálfs kringum 60 þúsund krónur nóttin. Hótelbókunarvél Wow Air finnur hvergi lægra verð en 64 þúsund krónur og hótelbókunarvél Icelandair býður ekki einu sinni upp á þetta besta hótel borgarinnar.








