Við héldum að það væri svona heilt yfir aðeins vitiborið fólk sem fylgdist með Fararheill. Svo virðist þó ekki vera raunin miðað við að tólf einstaklingar hættu að fylgjast með okkur í kjölfar þessarar greinar fyrr í dag.

Ekki má minnast á innlend flugfélög án þess að fylgjendum okkar fækki jafnt og þétt.
Þetta var svo áberandi að blindur maður í Slóveníu hafði samband og benti okkur á að í kjölfar þess að fabúlera lítið eitt um fréttir dagsins kostaði okkur tólf fylgjendur og það á sléttum níu mínútum í kjölfar birtingarinnar.
Merkileg viðkvæmni. Við vorum jú ekki að gera annað en láta hugann reika með tilliti til þess að eigandi Wow Air fór á fund hjá Samkeppniseftirlitinu í vikunni. Ef það er ekki forvitnilegt þá mega þessir tólf eiga sig og sína og gúdd riddans.
Það merkilega er að fylgjendum okkar á Twitter, Google eða Facebook fækkar alltaf lítillega þegar við fjöllum tæpitungulaust um innlend flugfélög. Rúmlega sex hundruð fylgjendur hafa gefið okkur puttann það sem af er þessu ári á Facebook einni saman þrátt fyrir að við séum 110 prósent að gæta hags neytenda.
Sumt fólk þolir greinilega ekki sólarljósið…







