Fíllinn í herberginu sem enginn talar um nema undir rós. Er Skúli Mogensen, eigandi Wow Air, svo aðframkominn með reksturinn að hann íhugar að sameinast Icelandair með einum eða öðrum hætti?

Wow Air síðustu misserin verið að breytast í Icelandair og Icelandair síðustu misserin verið að breytast í Wow Air. Samsett mynd

Eða hvað í ósköpunum á að lesa í þessa setningu sem birtist neðarlega í frétt Fréttablaðsins í dag?

„Þá herma heimildir Fréttablaðsins að Skúli Mogensen, forstjóri og eini hluthafi WOW air, og lögmaður flugfélagsins, Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hafi setið fund í húsakynnum Samkeppniseftirlitsins síðla gærdagsins. Ekki hafa fengist upplýsingar um efni fundarins.”

Það þarf ekki mikla vitsmuni til að vita að flugfélagið Wow Air getur með engu móti sameinast öðru fyrirtæki hérlendis en Icelandair. Fundur hjá Samkeppniseftirlitinu ekki aðeins eðlilegur partur í því tilliti heldur og nauðsynlegur. Eða hvað annað vildi Mogensen og lögfræðingur hans hjá Samkeppniseftirlitinu? Ganga í eina sæng með Rúmfatalagernum?

Yrði slík sameining fýsileg fyrir neytendur?

Svarið við þeirri spurningu er ekki einfalt. Það er staðreynd að Wow Air hefur undanfarin misseri verið að breytast í Icelandair og væs versa hjá Icelandair. Fleiri farrými, fleiri kostir og hærra verð hjá Wow Air meðan Icelandair hefur fækkað farrýmum og lækkað verð.

Þó Icelandair sé enn sýnu dýrari batterí svona almennt þá er munurinn almennt lítill og á köflum er mun dýrara að fljúga með Wow Air en Icelandair þar sem bæði flugfélög keppa á sömu flugleiðum.

Burtséð frá hugsanlegum hagræðingaráhrifum slíks samruna fyrir flugfélögin þá yrði það alltaf stínker fyrir íslenska neytendur. Sameining fækkar íslenskum flugfélögum aftur niður í eitt stykki og fólk sem eldra en tvævetur veit mætavel um okurálagningu Icelandair hér áður fyrr þegar flugfélagið réði einu og öllu. Eða hver man ekki hundrað þúsund króna fargjöldum fram og aftur til London hér fyrir fimmtán árum síðan?

Hvað gerist ef Wow Air fer undir græna torfu?

Aftur vandasamt að svara þeirri spurningu. Klárlega, fyrst um sinn, fækkar flugferðum til landsins til mikilla muna sem aftur hefur stór áhrif á marga ferðaþjónustuaðila. Sem er ekki endilega neikvætt fyrir viðkvæma náttúru landsins sem margir græðgissinnaðir ferðaþjónustuaðilar hafa notað sem skeinipappír til að bankabókin fitni. Sömu ferðaþjónustuaðilar og fá aðeins útlendinga til starfa sökum lágmarkslauna. Þið vitið hverjir þið eruð.

Stóra spurningin er hvort erlend flugfélög stökkvi inn í eyðurnar sem Wow Air skilur eftir sig. Við teljum sterkar líkur á að svo verði. Wow Air á ýmsa fýsilega brottfarartíma frá Leifsstöð sem munu heilla erlend flugfélög. Hvort ferðir þeirra verði jafn margar og þær sem Wow Air býður upp á er þó ólíklegt. Ísland er heitt en ekki funheitt.

Ætli sé stemmari hjá Icelandair fyrir sameiningu eða kaupum á Wow Air?

Við fyrstu sýn mætti ætla að svo sé alls ekki. Mogensen sent Icelandair pillur reglulega gegnum tíðina og ekki gefið þeim háa einkunn. Sem er dálítið merkilegt sökum þess að á alvarlegum flugmiðlum er það Wow Air sem er með brúnt í buxum en ekki Icelandair.

Plúsinn væri A) að taka út sterkan keppinaut. B) nýta sér viðskiptaupplýsingar Wow Air til að ákvarða hvert hagstætt er að fljúga sem Icelandair býður ekki nú þegar. C) ná einokun á öllum bestu brottfarar- og komutímum frá Leifsstöð og D) kenna Mogensen lexíu.

Á móti kemur þó að Mogensen er varla að fara að leyfa Icelandair að innlima sitt sísona án þess að fá feitan stól og feitari launatékka eða sporslur aðrar. Og ekki á Wow Air neinar flugvélar svo það per se getur ekki heillað flugfélag sem þarf nauðsynlega á því að halda að yngja upp flotann.

Þá líka verður að muna að Ísland er lítið land. Allir milljarðamæringar sækja sömu partíin og skála í sama kampavíninu. Það getur bara vel verið að Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair, og Skúli Mogensen, eigandi Wow Air, hafi oftar en einu sinni verið að veiðum í Miðfjarðará á nákvæmlega sama tíma og eftir matinn drukkið Jägermeister svo ört að þeir séu barasta bestu vinir.

En við neytendur munum alltaf tapa á slíku samkrulli. Þess vegna þarf Mogensen að koma sínu í lag og á koppinn. Samkeppni alltaf af hinu góða.