Ekki ýkja margt jákvætt að segja um ferðaskrifstofuna GB ferðir. Víst felldi ferðaskrifstofan niður golfferðir sínar á golfvöll Donald Trump í Skotlandi eftir gagnrýni Fararheill á sínum tíma en þetta klárlega ferðaskrifstofa sem fer á hausinn fyrr en seinna.
Frábært dæmi um fyrirtæki sem varla nennir að lyfta litla fingri í einu né neinu er ferðaskrifstofan GB ferðir.
Eins og neðangreint ber með sér:

Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef GB ferða sem eru að auglýsa vikulanga siglingu frá Flórída í janúar. Ekki aðeins nennir ferðaskrifstofan ekki að þýða enska útlistun á ferð sinni heldur og slær upp sem stórkostlegum ummælum um ferðina röfli frá forstjóranum sjálfum!!!
Eins og að mæra sjálfan sig sé ekki nógu slæmt þá eru umrædd kvót algjör þvæla:
„Það er eitthvað ólýsanlegt við lúxus skipafélög á borð við Silversea.” Nú? Ef það er ólýsanlegt hvers vegna þá að reyna að lýsa því?
„Yfirburða þjónusta, frelsi í mat og drykk, prívate butler þjónusta og þú færð að hvílast.” Hmm. Frelsi í mat og drykk? Getur fólk þá fengið sér allt sem það vill eins og í öllum öðrum siglingum? Prívate butler þjónusta fær 10 í einkunn fyrir þjála og góða íslensku. Næstum eins og viðkomandi sé að klára tólf ára bekkinn. Og þú færð að hvílast? Er fólk þá ekkert að hvílast í öllum öðrum siglingum?
„Þegar allt er tiltekið þá er þetta í mínum huga mesta value á markaðnum.” Dabbadona! Kannski er þetta mesta „value” á markaðnum vegna þess að stjórinn tímdi ekki að láta þýða ferðalýsinguna eða drullast til að þýða hana sjálfur.
Klárlega eitt ferðaþjónustufyrirtæki sem ætti að hverfa í heimskunnar dá sem allra fyrst.







