Sjaldan er öll vitleysan eins. Lífeyrissjóðsfyrirtækið Icelandair eyðir vel yfir hundrað þúsund krónum í mánuði til að greiða erlendu veffyrirtæki til að finna út hvað fælir frá viðskiptavini og hugsanlega viðskiptavini.

Stjórnarformaður Icelandair er bara næsti milljarðamæringur sem aldrei hefur þurft að hafa fyrir nokkrum hlut. Hann á ekkert sameiginlegt með þorra farþega Icelandair. Skjáskot
Hmmm. Spurning um að við hér sendum Icelandair reikning. Það er jú ekki eins og við höfum ekki bent flugfélaginu á þúsund hluti sem má gera betur undanfarin ár. En nei, alls ekki hafa samband við okkur. Eyðum frekar formúgum í erlend veffyrirtæki til að finna út hvað Icelandair getur gert betur. Ekki í fyrsta sinn sem lífeyri landsmanna er eytt í vitleysu.
Ók, bara örfá atriði og sem fyrr alveg ókeypis:
A) Versta bókunarvél í heimi – Ólíkt yfirmönnum Icelandair með sínar fimm milljónir í mánaðarlaun er það ekki raunin meðal fólks almennt í veröldinni. Tugþúsundir vilja fljúga sem allra ódýrast til og frá. En það er næsta ómögulegt að finna allra lægsta fargjald á vef Icelandair. Bókunarvefurinn sýnir aðeins viku í senn og alls ekki er boðið upp á leit að lægsta/ódýrasta fargjaldi hingað og þangað. Fólk verður bara að eyða kvöldum í að leita viku eftir viku eftir viku…
B) Virkilega góð laun en þjónustan rétt slefar meðallag – Virkilega gott mál að Icelandair heilt yfir greiðir fólkinu sínu góð mánaðarlaun. Mjög til eftirbreytni en á þessu sá hængur að þjónusta flugfélagsins þykir í besta falli miðlungs hjá viðskiptavinum. Hér þarf að sparka í rassa. Hætta með stíffrosin bros hjá flugþjónum sem komnir eru á sextugsaldurinn og hvers bros ná aldrei augum. Annaðhvort yngja upp eða krefjast þess að eldri flugþjónar séu 100% heilir í því að bjóða góða þjónustu.
C) Fleiri á vaktina í Leifsstöð – Við hér lent í því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að við innritun í flug Icelandair í Leifsstöð á annatíma eru aðeins tveir starfsmenn á deskinu. Tveir starfsmenn að logga inn 170 farþega þýðir virkilega langa og leiðinlega bið burtséð frá yndislegheitum starfsmannanna. Og hvað hugsar fólk í langri röð eldsnemma morguns? Jú, það hugsar flugfélaginu þegjandi þörfina.
D) Virðingarleysi fyrir viðskiptavinum – Okkur vitandi hefur flaggflugfélag Íslands, sama flugfélag og stærir sig af því að ferja knattspyrnulandsliðið milli landa, aldrei nokkurn tíma bent farþegum sínum á réttindi þeirra þegar og ef eitthvað bjátar á. Erindrekar Samgöngustofu bent á þetta atriði um áraraðir en Icelandair lætur sem vind um eyru þjóta.
E) Stundvísi er dyggð – Það næstum sama hvar tekið er niður. Vélar Icelandair eru næstum í helmingi tilfella langt á eftir áætlun. Gildir þá einu hvort flogið er frá Leifsstöð eða Albaníu. Flugfélagið er ítrekað á listum yfir flugfélög heims með hvað mestar seinkanir. Það þrátt fyrir að vera með kjörstöðu í Leifsstöð og æði flotta lendingar- og brottfarartíma á mörgum helstu flugvöllum heims.
F) Upplýsingar eru af hinu góða – Sök sér að einhver skitin lággjaldaflugfélög haldi farþegum sínum í myrkrinu þegar eitthvað bjátar á. Ófyrirgefanlegt af töltölulega stóru flugfélagi á borð við Icelandair. Flugfélagið birtir mjög reglulega fregnir af nýjum flugleiðum eða nýjum möguleikum í fluginu en aldrei staf að finna ef flug tefst fram úr hófi eða flugi er aflýst. Jú, auðvitað er hægt að senda sms til flugfarþega um tafir eða aflýsingar en það er bara fleira fólk sem máli skiptir. Til dæmis ættingjar sem eru að sækja fólk á flugvöll eftir flug. Við hitt fólk í Leifsstöð sem var að bíða foreldra frá Bandaríkjunum án þess að vita að fluginu frá Washington var seinkað um tólf klukkustundir.
G) Hættið að ráða milljarðamæringa í stjórn – Í stjórn flugfélagsins situr fólk sem veit ekki aura sinna tal. Sumir hverjir fengið þá peninga beint af trjánum. Það væri príma stöff ef Icelandair flytti bara milljarðamæringa en það ekki alveg raunin. Þorri fólks sem flýgur með flugfélaginu er úr millistétt eða þaðan af verra. En þessi þorri fólks á engan aðila í stjórn. Engan aðila sem skilur sjónarmið almúgans. Slæm mistök. Það þýðir að allir sem röfla á stjórnarfundum taka mið af milljarðamæringum sem eiga eðlilega ekkert erindi til hins venjulega fólks sem ekki á milljarða á bók.







