Á alheimskvarða eru Íslendingar í hópi allra stressaðasta fólks undir sólinni og aldrei stressaðri en fyrir jólin þegar allt þarf að gera og enginn tími til neins. Þá er kjörið að leyfa hjartanu að hvíla sig aðeins langt frá stressi og stússi á Balí í Indónesíu.
Það er ekki, hefur aldrei verið og mun líklega aldrei verða beint flug í boði frá Keflavík til hinnar yndislegu indónesísku eyju Balí. Þangað aðeins komist með krókaleiðum sem oft kosta hönd og fót og langa bið á hinum og þessum flugvöllunum.
En á köflum býðst okkur betra en það. Þessa stundina er hægt að finna fyrirtaks fargjöld með Singapore Airlines, einhverju langbesta flugfélagi heims, frá svissnesku borginni Zurich gegnum Singapore beint til Balí. Prísinn ef farið er snemma í desember og dvalið framyfir jól fer lægst niður í 52 þúsund krónur eða svo per mann.
Það er stórkostlegt tilboð alla þessa leið og það þrátt fyrir að millilent sé í Singapore bæði fram og aftur. Á heimleiðinni er biðin á flugvellinum það löng, tólf klukkustundir, að fólki gefst tækifæri á að skottast í borgina sjálfa, skoða þar krók og kima og borða á sig gat og samt eiga nægan tíma aflögu fyrir flug og það jafnvel á versta annatíma í eyríkinu. Engar áhyggjur ef þig langar að kaupa eitthvað drasl. Þú mátt hafa innritaða 23 kílóa tösku meðferðis hjá Singapore Airlines.
Vitaskuld er Zurich í Sviss ekki Keflavík á Íslandi en góðu heilli flýgur Icelandair reglulega til Zurich og við finnum fargjöld þar fram og aftur á umræddum tíma allt niður í 30 þúsund krónur án innritaðs farangurs. Þurfi fólk tösku með er gjaldið til Zurich rúmlega 38 þúsund krónur lægst þegar þetta er skrifað.
Og voilà! Við komin með flugtúr til Bali með sínar 35 gráður og þríréttað á veitingastöðum fyrir tvö þúsund kall niður í 80 þúsund krónurnar.
Svona, út með þig 🙂







