Samkvæmt fréttum dagsins hefur flugfélaginu Wow Air tekist að komast fyrir vind í bili með hlutafjárútboði. En eigandinn veitir engin viðtöl fyrr en seint í næstu viku???

Allir glaðir og hamingjusamir En er á það að treysta? Mynd Wow Air
Í einhverju lýðræðisríki með sterka fjölmiðla kæmist milljarðamæringur og eigandi flugfélags í bullandi vandræðum, ekki upp með að neita að tjá sig um málið fyrr en það hentar viðkomandi einhvern tímann í næstu viku.
Góðu heilli fyrir herra Mogensen eru íslenskir fjölmiðlar ekki aðeins vængbrotnir vegna fjárskorts heldur og krakkar á lágmarkslaunum að skrifa fréttirnar. Enginn tvítugur spjátrungur er að fara að ganga hart að geysivinsælum milljarðamæringi með svör.
Alas, við höfum ekkert fast í höndum um að Skúli Mogensen hafi bjargað flugfélagi sínu frá þroti NEMA FYRIR HANS EIGIN ORÐ. Og hvaða milljarðamæringur er að fara að játa sísona að flugfélagið hans sé á heljarþröm og það sé 50/50 hvort Wow Air verði starfandi eftir mánuð.
Enginn.
Nú væri óskandi að herra Mogensen tæki símtöl frá okkur hér enda enginn miðill verið gagnrýnni á flugmódel hans. En sá danskættaði hefur ekki yrt á neinn á þessari ritstjórn síðan 2014 og heldur ekki neinn starfsmaður flugfélagsins. Þar þolir enginn gagnrýni sjáðu til.
En ætli sé ráðlegt að bóka flug með Wow Air í desember til Orlandó, Nýju-Delí eða Amsterdam?
ALLS EKKI nema þú sért tryggð/-ur í bak og fyrir.
Því á meðan við höfum aðeins orð eiganda fyrir því að allt sé í gúddí þá er mjög líklegt að ýmislegt sé EKKI í gúddí…







