Flestir með augu í hausnum og athyglisgáfuna í lagi taka fljótlega eftir undarlegum hlut á ferð um baltnesku löndin Eistland, Lettland eða Litháen. Það er óvenju hátt hlutfall ljóshærðra kvenmanna út um allt.

Það sem hófst með vinalegri göngu 500 ljóshærðra stúlkna 2009 er nú fjölsótt árlega hátíð.

Það sem hófst með vinalegri göngu 500 ljóshærðra stúlkna 2009 er nú fjölsótt árleg hátíð.

Slíkt heillar oft karlpeninginn en í þessum löndum er þó flagð undir fögru í meirihluta tilfella. Ljóshærðar stúlkur hér eru undantekningarlítið með litað hár og ekki náttúrulega ljóst eins og finna má norðar í álfunni þó á því séu auðvitað undantekningar.

Ástæðan ku vera að stúlkum í þessum löndum finnst mikið til ljósra lokka koma og bera sig eftir því allar sem ein að lita hár sitt eins ljóst og framast er unnt án þess að ljótt verði eða augljóst.

Þá eru þær alls óhræddar að flíka ljósum lokkum sínum og árið 2008 stofnuðu blondínur í Ríga í Lettlandi formleg samtök Blondína. Ári síðar fóru þær allar 500 talsins í gönguferð um borgina eingöngu klæddar bleiku og hvítu. Yfirskrift þeirra göngu að bæta og kæta almenning en Lettland lenti illa í efnahagskreppunni 2008 eins og fleiri.

Síðan eru liðin mörg ár og viðburðurinn orðinn bæði vinsæll og árlegur og það sem meira er; heimsfrægur. Go Blonde hátíðin trekkir nú fjölda ferðamanna, oftast unga karlmenn, til Lettlands til að taka þátt í hátíðinni sem stendur nú yfir heila helgi og á mismunandi stöðum í landinu.

Kannski hátíð sem Gylfi okkar Ægisson sætti sig betur við en aðrar hátíðir þessa heims.