Ef allt væri rétt í heiminum ættu menn sem njóta þess ríkulega þegar vel gengur að fá mínus í kladdann þegar á bjátar. Ekki síst þegar viðbrögð við niðurgangi má súmmera sem jamm, japl og fuður út í eitt.

Þrátt fyrir breytingar í brúnni halda hlutabréf Icelandair áfram að falla.
Sem er nákvæmlega það sem Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur gert við að takast á við bullandi niðurgang á hlutabréfum Icelandair en þrátt fyrir digurbarkaleg orð, breytingar á farangursheimildum og uppstokkun í stjórninni halda bréf Icelandair áfram að falla. Eitt stykki bréf í Icelandair þennan daginn fór niður í 14 krónur á hlut og ekki verið lægra síðan í júlí 2013. Aldeilis makalaust á sama tíma og enginn Íslendingur hnerrar án þess að dropar lendi á erlendum ferðamanni.
Ýmislegt getur haft áhrif á gengi bréfa í fyrirtækjum en það er vægast sagt óvenjulegt að við taki nýr stjórnarformaður og það hafi alls engin áhrif til batnaðar. Þegar forstjóri Toyota tók við stjórnarformannskeflinu stóðu bréf Icelandair í 15.25 á hlut. Tilkoma nýs manns hefur því valdið frekara falli bréfa í Icelandair.
Auðvitað tekur tíma fyrir nýjan stjóra að setja mark á batteríið en kannski ekki í þessu tilfelli. Nýr stjórnarformaður hefur setið á þessu sama klósetti um áraraðir sem venjulegur stjórnarmaður og líkurnar á að kappinn lumi á ferskum og frjóum hugmyndum til að kippa Icelandair úr feitu loftgati og fá stinningu á ný langsóttar í meira lagi.
En kannski þarf nýi stjórnarformaðurinn að stokka upp í forstjórastólnum. Björgólfur ekki beint hlaðið hlutafjáreigendur trausti með ræðum sínum að undanförnu fyrir utan þá staðreynd að kröftugur niðurgangur kom algjörlega aftan að karlinum. Það helgast kannski af því að Björgólfur var bissí í allt öðru en að reka fyrirtækið. Hann eyddi löngum stundum í að formannast hjá Samtökum atvinnulífsins við að halda launum almennings í landinu við fátækramörk á sama tíma og hann sjálfur mokaði inn milljónum króna í tekjur mánaðarlega.
Að kasta karlinum fyrir róða væri góð byrjun til að rétta við þessa skútu. Það þarf ferskan greddukarl á borð við Skúla Mogensen til að koma árinni vel fyrir borð hjá Icelandair að nýju.







