Af öllum stöðum heims er það eingöngu í Asíu þar sem meðalverð á hótelgistingu hefur lækkað undanfarin sex ár. Annars staðar hefur meðalverðið hækkað um tugi prósenta.

Verð á hótelgistingu hefur snarhækkað nánast á heimsvísu á allra síðustu árum.

Verð á hótelgistingu hefur snarhækkað nánast á heimsvísu á allra síðustu árum.

Það má lengi leita að ástæðum þess að meðalverð á gistingu í fjársveltri Evrópu hefur hækkað um heil 48 prósent frá árinu 2008 og fram til ársins 2015. Það er vægast sagt ótrúleg hækkun á sama tíma og laun og meðaltekjur í álfunni hafa dregist saman í flestum löndum. Meðalkostnaður per nótt á evrópsku hóteli í lok árs 2014 nam 17.685 krónum.

Evrópa er þó jólahátíð miðað við hækkun þá sem orðið hefur á gistinótt í Mið-Austurlöndum á sama tímabili. Þar hefur meðalhótelkostnaður hækkað um 53 prósent frá árinu 2008. Þá var meðalkostnaður per nótt á hóteli um 13.700 krónur en í lok árs 2014 kostaði meðalnóttin tæplega 21.200 krónur.

Sama er uppi á teningnum í Ameríku. Á sama tímabili hefur meðalverð á gistingu þar hækkað um 36 prósent samkvæmt tölfræðimiðlinum Statista.

Því meiri ástæða til að láta peningana okkar ná lengra að nýta sér heimsins bestu hótelbókunarvél hér að neðan.