Hvað með Stokkhólmur? Það er stóra spurningin. Í það minnsta ef marka má flugfélagið SAS sem nú auglýsir grimmt flug til Stokkhólmur.

SAS er með þetta. Fallbeyging og alles. Skjáskot
Meðfylgjandi auglýsing eltir nú hvern þann sem álpast til að lesa eitthvað frá Svíþjóð á netinu þessi dægrin. Þar auðvitað Google að leita uppi „réttan“ markhóp fyrir áhugasama um flug til Svíþjóðar með SAS.
Nema hvað Google kann ekki fallbeygingu og því virkar þessi auglýsing heldur klén og léleg. Varla til þess fallin á ættjarðarvinir Íslands hópist á vef SAS að kaupa miða.
Reyndar er ekki sagan öll sögð. SAS nefninlega að plata líka. Þeir fljúga ekkert héðan til Stokkhólms og slíkt aldrei verið í boði. Frá Íslandi kemstu aðeins með SAS í beinu flugi til Oslóar.
Við köllum þetta Icelandair-heilkennið. Fullt af áfangastöðum í boði en við bókun kemur í ljós að millilenda þarf á hinum og þessum stöðum til að komast á auglýstan áfangastað. Eins og til Stokkhólmur í þessu tilfelli.







