Allra síðustu forvöð fyrir áhugasama að bóka flugmiða með Delta Airlines til New York áður en það flugfélag tekur sér frí frá Íslandi um hríð. Verst hvað miðinn er skrambi dýr.

Allt mjög eðlilegt við þetta fargjald Delta aðra leið til New York
Sök sér að heimta feitan seðil fyrir flug á viðskiptafarrými eða lúxusfarrými enda hefð fyrir því og fyrirtæki þarna úti sem telja það réttlætanlegt. En að fara fram á að Jón Jónsson úr Breiðholtinu, Gylfi Gylfason frá Tálknafirði eða Jónína Jónsdóttir frá Syðri-Reykjum í Fanndal greiði 192.555 krónur í fargjald aðra leið til New York er græðgi dauðans.
Jamm. Ódýrasta fargjald AÐRA LEIÐ frá Keflavík til New York á ALMENNINGSFARRÝMI kostar manninn 192.555 krónur eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti. Þetta er ekki aðeins verðið í síðasta flugi Delta vestur um haf héðan þann 28. september heldur og lægsta verð allar síðustu ferðir flugfélagsins.
Spurning hvort flugmálayfirvöld á klakanum sendi ekki JetBlue skeyti og bjóði sérkjör ef það flugfélag vill skjóta hingað vél og vél í áætlunarflugi. Delta er ekkert að gera fyrir okkur miðað við þetta verðlag.







