Vegir Icelandair eru órannsakanlegir. Flugfélagið býður nú sérstakt tilboð á flugi til og gistingu í Birmingham eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.
Þetta er svona allsæmilegt tilboð af hálfu Icelandair. 129. 800 krónur fyrir par eða hjón í þriggja nátta stuttan túr er ekkert gefið en með tilliti til að flugið eitt og sér fram og aftur með flugfélaginu finnst ekki á lægra verði en 54 þúsund krónur á haus þá er hægt að segja að hótelpakkinn kosti aðeins 20 þúsund krónur.
Þarna er svo sem aðeins um þriggja stjörnu hótel að ræða sem finnst á hótelvef Fararheill lægst niður í 8.700 krónur nóttin svo sparnaðurinn er í besta falli fimm til tíu þúsund kall þegar allt er til talið.
Það var hins vegar ekki erindið að benda á dapurt tilboð. Heldur hitt að þegar við reynum að bóka þetta þriggja nátta tilboð til Birmingham fáum við upp þessa mynd hér til hliðar.

Þriggja nátta tilboðið reyndist hér vera fjórar nætur? Kostar það meira eða sama verð? Skjáskot
Þetta er reyndar helst til ógreinilegt hjá okkur en sé vel rýnt má sjá að þriggja nátta Birmingham tilboðið er nú fjórar nætur.
Sem er heldur ruglingslegt. Gildi sama verð um fjórar nætur og þrjár er tilboðið aðeins að batna en það liggur ekki ljóst fyrir. Hafa verður samband við þjónustuver Icelandair og þar sem það tekur vikur þá sleppum við því.
Í öllu falli undarlegt, og ófaglegt, að plögga þriggja nátta hausttilboð sem svo breytist í fjögurra nátta hausttilboð þegar ætlunin er að bóka.







